Gefn - 01.01.1870, Síða 18
18
Tyrki og Engla á móti Rússum; hann rak Austurríkismenn
út úr italíu og var sjálfur í bardögum og hjálpaði Victori
Emanúel; og eins og föðurbróðir hans fyrrum let flesta
Norðurálfufursta, keisara og konúnga, sitja í kríngum sig
eins og sveinstaula og skemti þeim með sjónarleik í Herfurðu,
eins safnaði Napóleon þriðji enum helztu stjórnurum saman
til sín í Parísarborg til að horfa á gripasýnínguna, og gerði
þannig það sama með kænsku og friði sem hiun gerði með stríði.
J>að er enginn efi á, að þá hefir einhverr öfundað Napóleon.
Með öllu þessu hefir hann hafið landið til svo mikillar vel-
megunar, að aldrei fyrr hefir slíkt verið; og þegar Frakkar
nú eru að hrósa sér fyrir auðæfi sín og alls gnægtir, þá
gleyma þeir hveijum þeir eiga það að þakka.
Vér skulum hér gefa stutt yfirlit yfir ríkisár Napóleons
ens þriðja og aðdraganda þeirra.
Napóleon hinn þriðji er þriðji sonur Loðvíks Bónaparte,
fyrrum konúngs Hollendínga, og er fæddur 20. Apríl 1808;
var hann framan af landflótta úr Frakklandi ásamt allri
Napóleons ætt, og dvaldi fyrst i Augsburg (í Bayern) og
Túrgá (í Sveiss). 1831 tók hann þátt í upphlaupstilraun
þeiri'i er bróðir hans gerði í Norður-Ítalíu og komst úr því
klandri með aðstoð móður sinnar til Frakklands. Eptirþað
hafðist hann við á sloti nokkru er Arenenberg heitir í Túr-
gá, í forkunnar fögru héraði við Bóðensvatnið; þar lýsti
hann því yfir að hann væri réttur erfíngi Frakkakrúnu sem
lögarfi Napóleons lyrsta, og 1836 gerði hann í Strassborg
ena fyrstu tilraun til að brjótast til valda; en það mistókst
gjörsamlega og sleppti Loðvík Filippus kouúngur honum yfir til
Ameríku. J>ar var hann mjög skamma stund, en sneri aptur
til Arenenberg við fregn um sjúkdóm móður sinnar; en
þegar hún dó (3. Oct. 1837), fór hann á burtu úr Sveiss,
svo eigi yrði vandræði úr sér fyrir Sveissa stjórn; hann fór
þá til Englands, og var þar eitt hvað tvö ár: þá fór hann
til Boulogne og gerði þaðan tilraun í annað sinn (6. August
1840): þá var sagt hann hefði vanið örn á að taka kjötbita af