Gefn - 01.01.1870, Side 30

Gefn - 01.01.1870, Side 30
30 sðgðu að £>jóðveijar hefðu gott af að fá ráðníngu. J>essu máli lauk svo, að prinsinn, sem ætlaður var til kouúngs, kvað það sjálfur upp, að hanu mundi ekki taka á móti kosn- íngunni, og hefði menn nú mátt halda að Frakkastjórn léti sér nægja með það. En nú heimtaði hún af Prússakonúngi, að hann skyldi sporna við líkum tilfellum framvegis, og því neitaði hann, sagðist ekki vilja binda sig neitt í því tilliti og lét sendiherra Frakka skilja að hann ekki þyrfti að koma til sín optar med slíkt erindi. þetta kölluðu Frakkar smán- arlega aðferð sér auðsýnda og þá var úti friðurinn: Napóleou sagði Pnissum stríð á hendur að vönnu spori hinn 15da Júlí — og tóku menn til þess hversu snarræði hans var þá mikið og líktu honum við Napóleon gamla. Herboðið var kunngjört á þíngi Frakka og var því tekið með dæma- lausri gleði og sást þá bezt hvad þjóðin vildi hafa. Samt vora einstöku menn á þínginu á móti stríði, svo sem gamli Thiers; annar þíngmaður, Gambetta að nafni, sagði að stjórn- in vildi auðsjáanlega kasta allri ábyrgð stríðsins á þíngið; en þegar svo væri, þá ætti þíngið líka rétt að fá að heyra allt það sem skrifast hefði verið á um strlðsefnið og að sjá öll málsgögn; sér sýndist annars, kvað hann. stjórnin ekki hafa gefið nógar eða gildar ástæður fyrir svo ábyrgð- armiklum hlut sem stríð væri er gengi yfir land og lýð. Ollivier, æðsti ráðgjafi, færðistundan að gefa þínginu frek- ari upplýsíngar og jafn vel særði þíngið um að gánga ekki fastar að, og má þar af ráða að ástæðurnar vora magrar. Um þetta leyti og ena næstu daga ólmuðust blöðin af beggja þjóða hendi sem vitlaus væri og kendi hvorr öðrum um stríðið sem nærri má geta, báðir vitnuðu til guðs og sóru sig ýmist upp í himnaríki eða neðst niður í helvíti og vant- aði raunar ekki annað en að sjálfur höfðíngi myrkranna gengi bersýnilega í augsýn manna. Boðskapur Frakkastjórnar um stríðið á hendur Prússum kom 19da Júlí Kl. 1 \ til Berlín og hljóðar þannig á voru máli:

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.