Gefn - 01.01.1870, Qupperneq 36
36
ráða og sk yldi ekki í neinu vera keisaranumháður. þótiust
Frakkar nú hafa himin höndum tekið og fóru »frelsismennirnir«
— fjandmenn Napóleons — að bera hærra höfuðið og gera sér
ýmsar vonir. fýóðveijar færðustallt af meir og meir upp á skapt-
ið og unnu hvorn sigurinn á fætur öðrum; Napóleon fór undan
þeim í flæmíngi og VilhjálmurPrússakonúngur á eptir; enParís-
armenn gengu hraustlega fram í að skamma Napóleon og gorta
af sjálfum sér, kváðust vera óvinnandi því þeir hefði sgull rautt
húsum fullum« einsog Væríngjar sögðu um Miklagarðs keis-
ara, og alls nægtir sögðust þeir hafa, en gleymdu því, að
það var allt Napóleoni að þakka.
J>jóðverjar tóku hvorn kastalann eptir annan, voru þeir
raunar varðir af mikilli hreysti, en Frakkar höfðu hvergi
við. Lengst hefir Mets varizt, þar situr Basaine enn (16.
Oct.) og kemst eigi út, en gerir J>jóðverjum allan þann
skaða sem hann getur, verða þeir að halda þar mikinn her,
því annars »losnar úlfrínn«. Strassborg varðistlengi og var
kastað sprengikúlum og alls konar ófögnuði inn í borgina,
og hafði þar veríð mjög ógurlegt, er eldhnöttum og log-
bröndum rigndi hvervetna vfir, svo kviknaði í húsunum og
stóð allt í björtu báli, en fólkið faldist í kjöllurum og turn-
um, og átti illa æfi. Hertogi sá varði kastalann er Eirekur
hét: kalla Frakkar hann »Tjhrich« og er hann um fimtugt
og hið mesta hraustmenni; kvaðst hann ekki mundu gefast
upp fyrr en allt væri hrunið, og ekki voru borgarmenn
sjálfir fúsari til uppgjafarinnar; en þó kom þar um síðir að
ekkert var lengur til að verjast með, hvorki púður né kúlur,
en svo fast gengu Prússar að með skothríðina jafnt og þétt,
að það reiknuðust 3000, og opt 10,000 skot á hveijum degi
í meir en mánuð; en sprengikúlunum var ekki kastað nema
á náttarþeli, til þess að gera þær því hættulegri og ógur-
legri. Yar þar því nær allt bninnið er fágætast þókti:
háskólinn, gripasafnið og bókhlaðan: allt hinar fegurstu
skrauthallir og fullar af svo torgætum gripum að sagt er
að hvergi muni slíkir finuast; þar voru margar bækur og