Gefn - 01.01.1870, Qupperneq 41
41
Skamt frá borginni Sedan er höll ein lítil og fögur á
víðsýnum hól við Mosá; þar eru blómreitir fagrir og gler-
salir er blóm og aldin eru látin vaxa í með ofnhita. pángað
reið Vilhjálmur konúngur með varðmenn sína og marga
riddara, og þar var konúngsefnið með honum, sonur hans, er
var mikill höfðíngi í pjóðverjaher. Leið eigi á laungu áður
Napóleon kom með sína menn; var mönnum hvorutveggja
skipað sínum hvoru megin, en keisarinn og konúngurinn gengu
hvorr á móti öðrum ogheilsuðust ogtókust íhendur; kvaðst
Vilhjálmur konúngur harma það, er fundum þeirra skyldi
nú þannig bera saman. Napóleon kvað allt vera forlög.
Gengu þeir nú inn í eitt blómhúsið og sást í gegnum gler-
salinn að þeir töluðust eitthvað við af mikilli alvöru og
munu Napóleoni hafa stokkið tár, því hann þerði augu sín
og er slíkt mannlegt. Eigi vita menn neitt um hvað þar
fór á milli þeirra.
Meðan þetta gerðist norður við landamæri, var ókyrrt
í Parísarhorg; Palíkaó greifi, sem gerst hafði herstjórnar-
ráðgjafi, var sá eini sem borgarmenn höfðu fullt traust á, en
hann gat eigi annað við gert en gefið góðar vonir og haldið
skrílnum þannig í skefjum; en annars gerðist þar ekkert
merkilegt annað en það að keisaradrottníngin fiýði í dular-
búníngi og til Englands, þegar hún frétti hvernig farið
hafði; dvelur hún þar í kyrþey með syni sínum í jiorpi
nokkru skamt frá Lundúnum, og vita menn eigi glöggt,
hvort það muni vera Victoríu Engladrottníngu að kenna að
henni ekki er sýndur meiri höfðíngsskapur, og allt öðruvísi
fórst Vilhjálmi konúngi við Napóleon.
Vestur á pjóðverjalandi liggur fylki það er Hessen
heitir og var kjörfurstadæmi þángað til 1866, þegarPrússar
Táku á burtu marga þýzka smáhöfðíngja en drógu lönd þeirra
undir Prússa-krúnu. Höfuðborg í fylki þessu heitir Kassel,
en þar í nánd er staður nokkur er nefnist Vilhjálmshóll:
má telja hann með enum merkilegustu stöðum, þó ekki sé
þar nein höfuðborg né þess konar. par er mikil og fögur