Gefn - 01.01.1870, Page 61

Gefn - 01.01.1870, Page 61
61 Frá strönd til strandar æ, og æ til nýrra landa, þar rós hjá rósum grær, og furðuliljur standa! Frá hrönn til hrannar æ, sem aldrei aptur rís, því margfaldleikans vald sér myndir nýjar kýs — 5 svo þýtur sálin móð, og svimi hana beygir; hún sér þá bröttu leið, og klökknuð djúpt sig hneigir; þá hrynur tárið salt á sorgarfölva kinn, í svartri dauðans nótt, er felur himininn — og þá er listin mær og ástin ein, 10 sem yfirstigið fær þau hugans mein. — * * * Hví vildir þú á hetjusælli jörð með hvössum sverðum og í brynjum gráum upp vekja stríð og stálajelin hörð, og steypa þjóð frá sælutindum háum, 15 þú grimma þjóð, er böðvar ljóminn blindar, og blóðga skekur sigurgreiu í hönð? Veizt þú þá ei, að naprirnorna vindar ná og til þín frá ókunnugri strönd? — J>ér vilduð sjálfir öllum æðri verða, 20 almáttkir guðir, ráða jarðar hríng! í síknu blóði munduð hjörva herða, hugsuðuð ei um lífsins fullnægíng! En því var yður synjað um þá sælu, er setti drottinn beztan yndiskrans, 25 og fyrir dauðablóðsins svartri svælu sáuð þér aldrei ljúfu blómin hans: því aldrei þrýsti að Alexanders hjarta elskandi svanni dúnamjúkum barm; og margur hrakti frá sér brúði bjarta,

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.