Gefn - 01.01.1870, Síða 66
66
SKÝRÍNGAR
þetta kvæði er allt byggt á því, að hlutirnir verða að>
vera til, áður en vér skynjum þá; því að eins geta þeir
verið undirrót alls sem vér gerum. það heldur fastlega
þeirri hugsun fram, að vér ekki séum skaparar list-
anna, heldur sé listirnar gruudvallaðar í tilverunni, með því
vér hækkum hana upp í æðra veldi og gerum hanaþann-
ig að list. þetta er bvggt á því, að vér tökum allar
myndir og samlíkíngar úr sjálfri tilverunni. Eg hef fyrir
iaungu gert þetta kvæði, en það gerir ekkert til; engan
varðar um hvort það er frá því í gær eða fvrra dag.
Bls. 45.
v. 13- Madler og Struve (og raunar fleiri á seinustu
tímum) hafa lagt sig mjög eptir að sanna, að allur alheim-
urinn, það er, allir hnettir sem vér sjáum, eigi sér eina sam-
eiginlega þúngamiðju; og eptir ferð sjálfrar sólarinnar
(hinni translatorisku ferð í gegnum geiminn, því sólin stend-
ur ekki kyr), sem stefnir að stjörnumerkinu Herkúles, og
er 800,000 mílur á hverju dægri, þá hafa menn gert það
líklegt, að þessi þúngamiðja muni geta verið í Sjöstjörnu-
svæðinu, og næst í Alkýóne, sem er ein af þeim flokki.
Annars þart' þúngamiðjan ekki að vera í neinum hnetti
(líkama), því þúngamiðja tveggja eða fleiri hnatta getur
eins legið í rúminu á milli þeirra, eins og i einliverjum
þeirra.