Gefn - 01.01.1870, Side 76
76
skript = málverk. — v. 18 jarðar bein = steinar
(hér = marmari).
Bls. 60.
v. 4—7 lítur til málara og myndasmiða, sem byggja
á hinum sýuilega heimi, eins ogsaungmeistararnir byggja
á hinum heyranlega heimi.
Bls. 61.
v. 27. Jeg veit mikið vel, að Alexander mikli var
giptur (eins og Grikkir eða fornmenn nú giptust), en þetta
má ekki skiljast bókstaflega. það er einúngis sagt til að herða
á því, að ástin og listin sameinast ekki við metnaðargirnd og
undirokanir. — pó Napóleon hjálpaði listunum, þá gerði hann
það ekki einúngis vegna þeirra, heldur einnig vegna sín, til þess
að umkríngja sig með himneskum ljóma, en það var raunar
eins gagnlegt fyrirþað. Einstök undantekníng kaun að vera
til frá þessu, en öll sagan sannar það í aðalatriðunum;
Tamerlan, Attila, Sesostris, og allt Rómaveldi frá upphafi
til enda.
Bls. 62.
v. 8—19. Allir listamenn eru skáld. En í eiginlegum
skilníngi kalla menn skáld þann, sem vinuur listina fyrir
orðsins krapt. Orðið er ekki bundið við hin líkamlegu
meðöl, sem hinir aðrir þurfa; myndir, litir og liljóð (o:
hristíngur loptsins) fjötra það ekki grand, en þó hefur það
allt þetta í valdi sínu og takmarkast hvorki af rúmi, tíma
né líkamlegum hlutum. Sú list, sem kemst skáldskapnum
næst, er saunglistin, hún er næst honum andlegust
allra lista (o: mest ólíkamleg), en hún er lángtum meira
bundin. í fyrsta lagi verður hún ekki við höfð, nema með
dýrmætum verkfærum og í öðru lagi getur hún ekki lýst
nærri öllu sem til er. En skáldskapurinn getur verið livar ,
sem vera skai, og hann getur lýst öllu. J>ó vér ritum,