Gefn - 01.07.1872, Qupperneq 68
68
farið hafi verið að flytja þessi feiknabjörg lángar leiðir:
kletturiun var lagður á æki eða hjóltré og dreginn áf rnörgum
mönnum; við hjólin standa menn með krukkur, sem líklega
er í vatn eða viðsmjör til ad hella á ásaua; sumstaðar eru
umsjónarmenn með svipur, og beija eua lötu eða linu; á
knjám eins líkneskis stendur maður sem klappar saman
höndunum og gefur merki þeim sem draga. Á einu mál-
verki eru myndaðir eitthvað 200 menn, sem draga ógurlegt
steinlikneski einhvers manns eða guðs; en það má nærri
geta að miklu meiri mannfjölda hefirþurft til þess eu mál-
verkið getur sýnt; en það nægir til að gefa oss hugmynd
um aðferðina. — Dánir menn voru smurðir, sem kunnugt
er, og eru því til enn ófúnir líkamirnir, og kallast Múmíur.
Trú Egipta var margbrotin og eiginlega sólartrú; sumir
rithöfundar halda að guðir þeirra hafi í rauninni verið kon-
úngar, sem þjóðin trúði að hefði orðið að goðum og að frá
þessari uppsprettu sé upp runnar allar goðasögur út um
heiminn, þannig að frá Egiptalandi sé komin menntunin
yfir til Kaldeu og Assýríu, og víst er það, að eptir því sem
ráðið verður af fornleifunum, þá voru Assýría og Babílon
hin næstu ríki í heiminum eptir Egiptaland; þar var turninu
Babel bygður og gerður í ltkíngu við pyramídana, eins og
uppmjó strýta (nú er ekki eptir af honum nema fótstykkið,
og er 150 fet að hæð); þar uppi var musteri og legstaður
Belusar eða Baals konúngs og líkneski hans úr gulli, sem
Xerxes tók á burt; en sagan um Babel í ritníngunni og um
túngurnar er einúngis hugmyndasaga. þ>á halda menn að
menntunin hafi gengið frá Assýríu sumpart yfir til Indía-
lands en sumpart til Armeníu og norðureptir; hvað sem um
það er, þá þykjast menn fullvissir um að fornöld Inda sé
allmjög ýkt að aldrinum til, eins og Kínverja; því báðar
þessar þjóðir hafa þar að auki svo feykilega talnareiknínga
fyrir heimsaldirnar, að menn sjá strax að þeir geta hvergi
komið heim. Frá Egiptalandi hefir menntunin líka gengið
yfir til Grikklands og Ítalíu, eins og fornleifarnar sanna: