Fréttir frá Íslandi - 01.01.1874, Blaðsíða 23

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1874, Blaðsíða 23
fiJÓÐIIÁTÍÐIN. 215 fijóðhátíð Reykvíkinga (30. ág.), pjóðhátíð Mosfellinga og Kjalnesinga að Kollafirði (2. ág.), pjóðhátíð Akumesinga á Skipaskaga (2. ág.), Jjóðhátíð Borghreppinga að Svignaskarði (2. ág.), pjóðhátíð að Setbergi (2. ág.), fijóðhátíðina á Skógarströnd (2. ág.), pjóðhátíðina að Reykhólum (2. ág.), Jijóðhátíðarhðld á Ströndum vestur (2. ág.), fijóðhátíð Svarfdœla (3. ág.), fijóðhátfð Fáskrúðsfirðinga að Kolfreyjustað (2. ág.), og fijóðhátíð Reyð- firðinga að Eskifirði (6. ág.). pessi voru hin helztu þjóðhátíðarhöld f á- gústmánuði, sem kunnugt er um; má vera, að þau hafi verið miklu viðar, þó eigi fari sögur af, en víst er fiað, að í sumum sveitum og jafnvel stór- um og fjölmennum hjeruðum voru engin hátíðabrigði gjör í minningu þús- undárakátíöarinnar, önnur en messurnar, sem fyrirskipaðar Voru, nema ef til vill einhver smávegis tilbreytni á heimilum. fjjÓSh átíðarhöld fiau, sem hjer voru talin, hafa, að fiví er spurzt hefur, öll farið fram hið bezta, með meiri og minni viðhöfn, eptir fiví sem til hagaði og föng voru á á hverjum stað. Yíðast voru hátíðahöld fiessi fólgin í fivf, að haldnar voru veizlur, og skemmtu menn sjer fiar með samrœðum, skáladrykkju, söng, dansi, og hljóðfœraslætti, og öðru því er menn venjulega hafa til skemmt- ana; en einkennilegt var þaö við flest eða öll samkvæmi fiessi, að í fieim voru gjörð ýmisleg samtök um að gjöra eitthvert þarft fyrirtœki í minn- ingu hátíðarinnar, og sumstaðar var heitið samskotumtil slíkra fyrirtœkja. Voru hátfðarhöld þessi því eigi stundarskemmtun tóm, heldur eru líkindi til, að nokkuð gott kunni að leiða af þeim síðar. f)að yrði of mikil mála- longing og enda með öllu óþarft að lýsa hjer hverju þessu þjóðhátíðarhaldi fyrir sig, þar sem þau voru hvert öðru lík og öll meira eða minna svipuð þjóðhátíðarhöldum þeim, sem lýst er hjer að framan. En vert er með fám orðum að minnast tveggja þeirra sjerstaklega; annað þeirra er þjóðhátíð- arhald Reykvfkinga hið síðara, er svo sem við er að búast fór fram með mestri viðhöfn, en hitt er þjóðhátiðarhald Svarfdœla, er öðrum fremur hafði oin- kcnnilegan, þjóðlcgan blæ. pjóðhátíðReykvíkingahin síðari var haldin 30. dagá- gústmánaðar; en því var hún haldin aptur, að bœjarbúum þótti þjóðhátfð- in 2. ágúst hafa heppnazt miður en skyldi, með því að hátíðarstaðurinn þá hofði verið illa valinn, og stormurinn spillt skemmtun manna. Nú var há- tíðarstaöurinn settur á sljettum grasvelli fyrir vestan bœinn, og veður var hið bezta. Kl. 4'/2 eptir miðjan dag komu menn saman á Austurvelli. Söng þá söngfjclag bœjarins fyrstaog síðastaerindið afþjóðsöngnum „Eld- gamla ísafold“. Að því búnu gengu menn í fylkingum á hátíðarstaðinn. A hæð einni lítilli var þar reistur rœðustóll með veifum, og stengur tvær þar út í frá, sín til hvorrar handar, einnig mcð veifum. Nokkru neðar var danspallur lagður úr borðviðum; 4 háar stengur voru reistar á4hom- um hans, og aðrar 4 lægri á milli þeirra til hliða. Umhverfis danspallinn lágu blómfljettingar á miðjum stöngunum, en yfir honum voru reistar 4 ltrossgrindur, vafðar blómhringum, og þar upp af stöng há með fána. Lampar hjcngu á 4 homstöngum danssviðsins, og rúm 20 ljós önnur með

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.