Fréttir frá Íslandi - 01.01.1874, Síða 24
24
]>JÓÐHÁTÍÐIN.
ýmsum litum ljómuðu upp danssviðið. 8 tjöld stóðu {>ar í röð sbammt frá
roeðustólnum. Hátíðarhaldið sjálft byrjaði kl. 5. Var fyrst sungið minni
Ingólfs landnámsmanns, eptir skáldið Steingrím Thorsteinsson. pví næst
mælti skáldið Mattias Jokkumsson fyrir konungsminni, pá Steingrímur Thor-
steinsson fyrir minni Islands, og pá ritstjóri Björn Jónsson fyrir minni
Ingólfs. pá var aptur sungið. Enn hjeldu menn ýmsar rœður, og fiar á
meðal hinn danski íslendinga vinur, doktor Rosenberg, er hjelt tölu til
hinnar íslenzku pjóðar. Kl. 7 hófst dansinn; en Jd. 10 byrjuðu flugeldar
og stóðu peir lengi. Skemmtu menn sjer ágætlega alla nóttina ýmistmeð
dansi, söng, rœðum eta samdrykkju, og var samkomunni eigi lokið fyr en
kl. 6 morguninn eptir. I hátíðarhaldi pessu tók pátt mikill fjöldi manna,
innlendir og útlendir, og varð eigi tölu á komið. Hátlðarhaldinu stýrði
handiðnamannafjclagið í Reykjavík, einkum Sigfús ljósmyndari Eymundar-
son, og pótti hafa tekizt pað prýðilega.
pjóðhátíð Svarfdœla var haldin 3. ágást á sljettri gróirtni
grund fyrir neðan HofBá par í dalnum; er par einkar fagurt. par voru
reist tjöld mörg, og eitt peirra mest; pað var 24 álna langt og 6 álna
breitt. Skammt paðan var rœðustóll reistur, sveipaður hvítu líni. pegar
um morguninn fór fólk að drífa að, og um hádegi var par saman kominn
mikill mannfjöldi. pávar byrjuð hátíðin; voru fánar dregnirupp ogkluklc-
um hringt. pá skipuðu menn sjer í fjórsettar raðir, hver sókn sjer, og
hófuhátíðargöngu. Fyrstirgengu Stœrri-Árskógssóknarmenn, en fyrirpeim
gekk merkismaður með stöng, oghjekk paráhvít blæja með rauðum krossi
í miðju; næst peim gengu Vallasóknarmenn; bar merkismaður peirrastöng
með grœnni blæju, og var fálki á dreginn; pá komu Urðasóknarmenn, og
var fyrir peim borin hvít blæja með fálkamynd; pá gengu Tjarnarsóknar-
menn, en fyrir peim var borin rauð blæja meö fálka á; pá komu síðastir
Upsasóknarmenn, og bar merkismaður peirra stöng fyrir peim mcð himin-
blárri blæju. pá er fólkið hóf göngu sína, hætti hringingin, en byrjaðir
hljóðfœraleikar, og var leikið meðan gengið var. Fólkið nam staðar hjá
rœðustólnum, og skipaði sjer í hálfhring kringum hann, en merkismenn-
irnir kjeldu uppi merbjum sínum. pá var sálmur sunginn, og að pví búnu
haldnar rœður. Fyrstu rœðuna hjelt Hjörleifur prestur Guttormsson frá
Tjörn, en pá Páll prestur Jónsson frá Völlum, og pá Sófónías stúdent
Halldórsson frá Brekku tvær. Milli pess er rœðurnar voru fluttar, var
sungið, leikið á hljóðfœri og skotið. pá flutti porkell porsteinsson frá Upp-
sölum enn tölu og Jónas Jónsson frá Brekku kvæði. Að pví búnu var
aptur sunginn sálmur, og skotið á eptir. Varð nú hlje á um stund, og
gengu menn til tjaldanna að fá sjer hressingu. Eptir pað var byrjað að
mæla fyrir skálum. Fyrst var minni íslands, pá minni konungs, pá minni
dalsins, pá landsliöfðingja, pá Jóns Sigurðssonar, pá allra merkustu manna
landsins að fomu og nýju, pá porsteins Svarvaðar, pá Klaufa, fornhetju
dalsins, pá gamalla manna og pá ungra o. s. frv. Síðan var sungiö um
hríð. Eptir pað stigu menn dans á af'girtu svæði par á grundinni; en er