Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Side 7
9
cm., þá svört gosaska um 3 cm., þar fyrir neðan mold, dálítið leir-
blandin, um 25 cm., og síðan var grafið um 37 cm. ofan í hreinan
sand. Þessar syðri tóptir eru mjög nærri fljótinu og mun sandurinn
stafa frá því. Við gólfskán eða tað varð alls ekki vart. Þar næst
grófum við í eina af nyrðri tóptunum. Þar varð hið sama fyrir efst,
en fyrir neðan gosöskulagið var enn þykkara moldarlag en i syðri
tóptunum; grófum við 135 cm. djúpa gröf og komumst þó ekki niður
úr mold. Við gólfskán varð ekki vart.
Allar eru tóptirnar mjög útflattar og vallgrónar, harðla fornlegar
á að sjá, enda hefir sandurinn strokið um þær og kæft þær nokkuð.
Þó eru þær full-greinilegar enn. Lítil líkindi þykja til þess, að þær
sje eptir sauðahús eða önnur peningshús, en því meiri eru líkurnar
fyrir því, að þær sjeu eptir þingbúðir, og þá helzt þeirra Höskulds.
Staðurinn var að því leyti hentugur fyrir samkomustað fyrir hann,
að hann er mjög miðsvæðis í því hjeraði, sem hann átti fylgismenn
í og við einn aðal-veginn. Qott og gnægt neyzluvatn var hjer og
hrossahagar ágætir, enn það tvent vóru nauðsynjar á öllum þingstöð-
um. Staðurinn hefur verið afgirtur, eins og Lambanes-þingstaður
(sbr. Árb. 1924, bls. 38—39 nm.). Hefur það verið gert vegna hesta.
Hjer er svo mishæðalaust, að ekki hefur verið nein veruleg þing-
brekka, svo sem á vorþingastöðvunum. Ef til vill hefur pallurinn
upphækkaði, sem er suðvestanvið löngu tóptina einstöku meðal hinna
nyrðri, komið i stað þingbrekku eða verið notaður á svipaðann hátt.
Þar sem Valgarður segir í sögunni, að hann hafi komið á (og ekki
/) Hvítanes (sbr. einnig orð Njáls) bendir það til, að Hvítanes hafi
verið flatt, og jafnvel helzt lágt og tiltölulega breitt, miðað við lengd
þess. Svo er um þetta nes, sem Eyjarfljót myndar hjer. En hvers
vegna þetta nes skyldi geta kallast Hvítanes, það verður nú ekki sjeð,
enda er óvíst hins vegar, hvers vegna Hvítanes var kallað því nafni.
Nú er hjer hvorki hvit leirjörð nje fífa; en vitanlega getur verið
orðið hjer umbreytt að þessu leyti á 9 öldum. Þykir mjer þetta ekki
ósanna, að hjer sje fundinn hinn forni Hvitanes-þingstaður, en [búða-
tóptirnar hins vegar gera það mjög liklegt, að hjer hafi hann verið.
Matthias Þórðarson.