Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Page 56

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Page 56
Örnefni um Skálholtsland í Biskupstungum. í Biskupa-annálum síra Jóns Egilssonar er birtur spádómur einn lútandi að framtíð Skálholtsstaðar og eignaður Sveini biskupi Péturs- syni, sem kallaður hefir verið hinn spaki. Þar segir meðal annars'): »Þar eptir, með þeim fjórða (o: eftirmanni Sveins Péturssonar á biskupsstóli) mun siðaskipti koma í land á öllu: messusaung og tíða- gjörðum, hríngingum og helgihöldum, og það mun alla tíma aukast meir með þeim fimta og sjötta; þá vil eg heldur vita son minn búa í Höfða1 2), eða vera fjósamann í Skálholti, heldur en kirkjuprest, því Skálholt hefir aukizt og eflzt með herradæmi, en það eyðist með eymd og veslíngskap; enda er þá þetta land komið undir útlenzkar þjóðir«. Spá þessi má þykja hafa rætzt helzti bókstaflega. Þótt land vort sé nú orðið óháð öðrum þjóðum, virðist hagur Skálholtstaðar lítt ætla að glæðast. Gestsauga, sem svipast um á rústum hins forna höfuðbóls og biskupsseturs, sér furðu fátt, er minnt geti á forna frægð þess. Gömul kirkja stendur vestast á grunni dómkirkjunnar fornu. Hún hefir skekkzt af veðragangi og jarðskjálftum (t. d. árið 1896) en jafnan verið hresst við eftir föngum til þess að eigi þyrfti að rífa hana fyrr en í síðustu lög. I kirkju þessari messar nú presturinn á Torfastöðum fjórða hvern sunnudag3), en auk þess geymir hún þær fornminjar, sem enn eru varðveittar í Skálholti4). 1) Sjá Safn til sögu íslands o. s. frv. I, bls. 38. 2) Höfði er í norðaustur frá Skálholti, og liggja lönd jarðanna saman. í Höfða bjó um eitt skeið Gizur hviti »áðr hann gerði bæ í Skálaholti ok færði þangat bú sitt« (Kristnisaga, Bps. Bmf. I, bls. 26). Frásögn þessa ber þó eigi að skilja svo, að Gizur hviti sé fyrstur bóndi í Skálholti. Eins og kunnugt er, reisti Teitur faðir hans þar fyrstur manna bæ (sbr. Bps. Bmf. I, bls. 60). 3) Ef alt væri með feldu, mundi eigi verða messað oftar i Skálholti en fimmta hvern sunnudag, vegna þess að Torfastaðaprestur hefir fjórum öðrum kirkjum að gegna. En ein þeirra, Úthlíðarkirkja, er svo hrörleg, að eigi þykir messuhæf, og nýtur söfnuður Skálholtskirkju þess. 4) Sjá um þær í Árbók hins ísl. Fornleifafélags 1894, bls. 3—6, og 1908, bis. 41—42.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.