Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Side 64
Örnefni á nokkrum eyjum á Breiðafirði.
1. Örnefni í Hrappsey á Breiðafirði.
Hrappsey (1) er um 7 km. norðaustur af Stykkishólmi og svip-
aða vegalengd útnorður af Dagverðarnesi og enn svipaða vegalengd
útnorður af Suðureyjum (Öxney, Rifgerðingum, Gvendareyjum o. fl)
og lítið eitt styttra í landsuður af Bíldsey og Arney.
Hrappsey er ekki landnámsjörð, en á 13. öld er getið um hana
sem bygða ey, þegar Tumi Sighvatsson flúði þangað undan Kolbeini
unga og Gissuri, eftir víg Snorra Sturlusonar.
Sundið milli Hrappseyjar og Stykkishólms hefur heitið og er enn
kallað Breiðasund. Sundið milli Hrappseyjar og Purkeyjar hefur verið
kallað og er enn kallað Selasund; þar drukknaði Einar Skálaglam á
Einarsskeri. Nú er þetta sker altaf kallað Einarsboði og er lítinn spöl
frá Suðurstakknum í Purkey.
Hæðin, sem Hrappseyjarbær stendur vestan til á, er kaliaður
Vindás (2). Suður-undan og niður við sjóinn heitir lítill tangi Undir-
tún (3), og er þar lendingin. Stutt fyrir utan bæinn er hóll, sem heitir
Helluhóll (4), og dálítið vestar á túninu er Álfhóll (5). Norður-af
bænum heitir Tuttugu-álna-völlur (6) og nær hann austur að skurði frá
kúahlöðinni uppundir kvíarnar og að skurði frá fjósbrunninum og
vestur í mýrina. Vestarlega á vellinum er all-hár hóll, sem heitir
Skalli (7). Á sljettu vestan-til við hann er all-stór hringur og er hann
mjög gamall, en þó sjest vel glöggt fyrir honum öllum; við austur-
rönd hans hefur verið hús, sem líkist mest fjárhúsi, en er mjög gamalt,
þó líkast til yngra en hringurinn. Norðan-til á þessum velli stendur
lambhús; heiman-til, næst hlöðunni, er hóll, sem heitir Mylnuhóll (8).
Gata liggur gegnum völlinn norður í Stöðullágar. Ofan-til við götuna
er lægð inn í Fjósborgina, og heitir lægðin Skeggjadalur (9); í honum
er all-há tóft og nokkuð stór um sig. Nokkru norðar og lengra upp
með götunni er lægð, og heitir hún Legnidalur (10). Fjósið og hlaðan
eru í Kaupamannavelli (11) og er nokkuð af honum fyrir vestan
hlöðuna, en nokkuð fyrir austan hana. Fyrir austan fjósið er Fjós-
flötin (12); þar uppundan eru Fjóshólarnir (13), og efst heitir Gisla-