Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Síða 8

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Síða 8
8 margar og miklar hellur í röð; hefir þar sennilega verið einhver bálk- ur, eða eitthvað staðið þar á hellunum, en í milli þeirra og eldstæð- isins við austurvegginn var steinn með skál í að ofan, flárri og svartri að innan; sennilega kola. Er hann var tekinn upp, kom í ljós, að ámóta skál var í honum hins vegar, og var hún einnig svört að innan. Báðar virtust skálarnar gerðar af náttúrunni að mestu eða öllu leyti. Steinninn er nokkurn veginn ferhyrndur, og þó ávalur um eitt hornið, hliðar næsta beinar og jafnar, en annar endinn, sem er þykkari en hinn, er totumyndaður og með 2 skáflötum og sömuleiðis er hinn nokkuð á ská; er það náttúrleg myndun og samkvæmt eðli þessarar bergtegundar, sem er eins konar grágrýti. Steinninn er 40 cm. að lengd, 25—30 cm. að br. og 7—15 cm. að hæð; skálarnar eru um 22—23 að vídd og 3,5 að dýpt, önnur, en hin er öll óreglulegri, litlu minni um sig (um 20 cm.) og öllu dýpri (um 5 cm.) í miðju. Undir kolusteininum var allstór steinn á gólfinu og annar utan-við hann, sennilega hleðslusteinar. Að líkindum hefir verið hér dálítill bálkur eða pallur, sem kolan hefir staðið á, en svo þung er hún, að hún hefir ekki verið ætluð til að bera um húsið eða færa oft úr stað. — Um gólfið voru öskudrefjar og kola-agnir norður frá eldstæðinu, en þó varð þeirra ekki vart, né gólfskánar, um 1 m. nyrzt. — Á vesturvegg þessa húss eða bæjarhluta sýnast hafa verið tvennar dyr. Aðrar á veggnum miðjum, gegnt stallinum, sem ljósakolan hefir verið á; hefir hún verið sett þarna með tilliti til þeirra dyra og gangsins vestur frá þeim. Þær dyr hafa verið þröngar, að eins um 60 cm. að breidd, eftir gólfskáninni að dæma, sem var í þeim og ganginum vestur frá þeim, gegnum vegginn, Lá sá gangur í útbygginguna vestan-við norðurhús þetta, og vottaði glögglega fyrir honum áður en grafið var. — Hinar dyrnar virtust hafa verið 1 m. frá norður- enda hússins. Var þar helluröð á ská út frá til norðversturs; hafa gönginn verið á ská gegnum vegginn. En ein hella virtist benda til, að annar gangur hefði legið suðvestur frá þessum gangi, inn í afhús- ið, útbygginguna. Dyrnar að utan virðast hafa verið á norðurvegg, vestan-við vesturhliðvegg að mestu leyti. Var helluröðin J/2 m. að breidd og 22k m. að lengd, en að eins tæpur 1 m. frá útidyrum inn í útbygginguna, — soðhúsið, að því er virtist. Norðan-við helluröðina, yzt í ganginum þar eða dyrunum, var mikil aska og eimyrjuleifar, sem þar hefir verið sett til að ganga á. Þrep hefir verið ofan í soðhúsið, og er steinn þar neðan-við í gólfinu. En í göngunum gegnum miðjan millivegginn, milli þess og norðurhluta aðalhússins, virtist ekkert þrep hafa verið, heldur hafði gólfinu í göngunum hallað ofan að soðhúss- gólfinu. Það gólf var um '0 m. lægra en í norðurhluta aðalhússins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.