Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Blaðsíða 57

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Blaðsíða 57
57 auganu eru leifar af sköftunum. Hnífurinn hefir verið 19,7 cm. að lengd. Leifar af tréskafti eru um tangann. Blaðið er um 9 cm. að lengd og er með mikilli ryðkássu um, svo sem það hafi verið í leður- skeiðum, sem hafi ummyndazt í ryð út frá blaðinu. — Skjaldarbólan er 13,6—14,5 að þvermáli um kragann, og er hann um 1,5 cm. að breidd, en að hæð er bólan 6 cm., og er laglega hvelfd. — í krag- anum eru þrír naglar. Dysjar þessar eru sennilega frá síðari hluta 10. aldar, en engum getum verður leitt að því, hver hér hafi verið heygður. Matthías Þórðarson. Um fornleifafund á Úlfarsfelli. Skýrsla eftir Þorleif Jóhannesson. Mánudaginn 2 Júní 1930 fór ég með Guðbrandi Sigurðssyni, hreppstjóra á Svelgsá, upp að Úlfarsfelli i Helgafellssveit, til þess að athuga þar fornleifar, sem fundust þar, er verið var að grafa kjallara, sunnan-við bæ þann, er nú stendur þar. Kjallaragröfin snýr frá norðri til suðurs; lengd hennar er 6,25 meter, en breidd 3,86 m. í botni grafarinnar, er var 1,85 m. á dýpt, var þró við suður- gaflinn. Þegar við komum þar, sást á hellur, er mynduðu ferhyrning, og var mok- að svo upp úr, að það var auðséð, að þær voru reistar þannig, að þær mynduðu þró. Við mokuðum upp úr þró þessari þar til að kom ofan á hellu, er var í botni hennar. Hellur þær, er mynduðu hliðarnar, stóðu á botnhellunni. í þremur hliðum var sin hellan í hverri, en í austurhliðinni voru tvær hellur felldar saman. Á hellu þeirri, er myndaði suðurhliðina, hafði verið gat, en þar á bak við hafði verið sett litil hella með hnúð á, er gekk út í gatið. Öll samskeyti voru þéttuð með hvíileitum leir, er Jón Benediktsson, bóndinn á Úlfarsfelli, sagði að væri þar uppi í hálsinum. í botni þróarinnar og einkum i hornunum var mikið af hvítgrárri leðju; tók ég dálítið með mér af henni. Hún! þornaði fljótt og varð þá hörð og molnaði. — Þróin hefir verið í vesturhorni á húsi, því að undirstöður af vegg voru fast við hana að vestan verðu, og eins að sunnan verðu Frá eystri hlið kjallaragiafarinnar að eystri barmi þróarinnar voru 103 m., en vestri barmur hennar 2,22 m. frá vesturhliðinni, en suðurhliðin fast við suðurgaflinn. Stærð þróarinnar var þannig: Dýpt 67 cm , lengd frá norðri til suðurs 77 cm., suðurhlið 80 cm, en norðurhlið 63 cm. Við tókum hellurnar upp, því hleðsla hlaut að koma yfir þróna. Var erfitt að koma þeim upp, því þær voru all- þungar Undir botnhellunni var óhreyfð leirjörð. — Ég bað Jón bónda um að geyma hellurnar, svo að þær skemmdust ekki eða glötuðust. Síðar varð mér kunnugt, að steinkola og lítið brýni hefðu fundizt í kjallara- gröfinni; er það hvorttveggja geymt hjá Guðbrandi hreppstjóra.1) I sambandi við þetta skal ég geta þess, að nokkru síðar átti ég tal við Guðmund, son Guðjóns bónda á Saurum í Helgafellssveit, um fornleifar þessar; sagði hann mér þa, að fyrir nokkrum árum hefði veiið grafið þar fyrir hey- hlöðu, norður-af íbúðarhúsinu; hefðu þeir þá komið ofan á þró, líka þeirrí, er fannst á Úlfarsfelli, en að því, er hann minnti, mun hún hafa verið nokkru minni. Þessu hafði öllu verið rótað, án þess að athuga það frekar. 1) Steinkolan, brýnið og sýnishorn af hvítgráa efninu (leirnum) i þrónni hefir nú verið sent til Þjóðminjasafnsins, en hellurnar eru á Úlfarsfelli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.