Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Blaðsíða 76
76
beri þeir þetta nafn. Framan-við Hólaskóg er Bleikkollugil (106).
Vestur-af Hólaskógi er Stangarfjall (107); norðurhorn þess heitir
Stangarfellsöxl (108). Vesturhlið Stangarfjalls er austurhlíð Fossár-
dals(109). Framan-í Stangarfjalli eru Leppar (110); vestan-við þá geng-
ur klettanef niður að Fossá, er heitir Lambaréttarnef (111). Austan-
undir Stangarfjalli eru Gjáskógar (112) niður við Rauðá. Rauðá renn-
ur austan-við Hólaskóg, og svo eftir Hellisskógagljúfri (113). Nú eru
þar gróðurlaus öræfi. Við austurenda gljúfursins er Hólaklif (114);
þar fram-af er Kjóaflöt (115). Austur-af Kjóaflöt er Bolagrófar-
höfði1) (116); vestur frá honum er Gjáin (117). Austur-af Gjánni eru
Hrossatungur (118). Skammt fyrir framan Gjána er Rjóðrunargil (119).
Framan-við það er Steinastaðahöfði (120). Framan-í höfðanum sést
fyrir rústum Steinastaða. Fram-af Stangarfjalli er Skeiðamanna-
hólmi (121); þar eru áfangastaðir Skeiðamanna í fyrstu fjall-leit; fengu
þeir leyfi hjá Eystri-Hreppsmönnum að hafa þar áfangastað. Austan
Rauðár, þar sem hún rennur í Fossá, er Skeljafell (122). Vestur-úr
því að Fossá gengur melrani; á honum er Rekstraklif (123). Framan-
undir Skeljafelli eru rústir af bænum Skeljastöðum. Múli sá, er geng-
ur fram-af Skeljafelli, heitir Sámsstaðamúli (124); fyrir framan hann eru
rústir af Sámsstöðum. Fyrir vestan múlann er flöt, sem heitir Hjálp
(125). Á þessari grasflöt var fjársafnið hvílt, áður en það var rekið
yfir Fossá, og hefir hún að líkindum fengið þetta nafn af því. Rétt
hjá Hjálp er Hjálparfoss (126) í Fossá; undir fossinum er Fosshylur
(127), þá Framhylur (128), svo Dýhylur (129), svo Krókhylur (130),.
þar næst Veiðihylnr (131) og syðst Búrfellshylur (132).
Austan-undir Sámsstaðamúla er Sámsstaðaklif (133). Austan-við
Búrfell (134) rennur lækur, er heitir Bjarnalækur (135). Við mynnið á
honum er Tröllkonuhlaup (136) í Þjórsá. Vestan-í norðurhorni Búr-
fells er dalur, sem heitir Skál (137). Austan-við Skál er Skálarfell (138);
austan í því eru flár, er heita Sneiðingar (139); framan-við þær er
Þjófagil (140). Innsti hluti skógarins í Búrfelli heitir Flóki (141); er
hann austan-undir Búrfelli; framan-við hann er Tröllkonugróf (142);
framan-við grófina er Búrfellshólmi (143). Þá kemur Búrfellsháls (144);
er hann allur skógi vaxinn. Upp-af honum er Irputorfa (145); ber hún
nafn sitt af því, að þar hafði gengið úti yfir veturinn jörp hryssa. Fyr-
ir vestan torfuna er Uppgöngugil (146). Framan-undir hálsinum er Þjófa-
foss (147) í Þjórsá. Vestur-af Þjófafossi eru Gjárnar (148). Fram sand-
ana vestan-undir Búrfelli rennur lækur, er kemur upp í Sámsstaðaklifi;
hann heitir Trjáviðarlækur (149).
1) Nú veit enginn, hvar Bolagróf hefir verið; er nú orðin full af sandi.