Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Qupperneq 42

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Qupperneq 42
42 'Skeifnadalur, fjallsmegin við veginn, og endar við Kúalágarholt, ofan- við þjóðveginn, og heldur síðan áfram austur að Engigarðsgili, en heitir þá Messuholt. Milli þess og Selhryggjar og þjóðvegarins og Engi- garðsgils er Selhryggsmýri. Er þá komið þangað, þar sem Reynis- fjall þrýtur og Vík endar. Heitir þar Fjallsendi, og taka þá við Reynis-, Foss- og Gatna-Iendur. Við Iögðum upp á heiðina um Götuskál. Norðurbrúnir Arnar- stakksheiðar liggja í stórum bug sunnan- og austan-að Heiðardal og Heiðardalsá, en hún rennur í þröngum bug kringum norðausturhornið á heiðinni. Austan-við þetta horn og hinum megin Vatnsár eru Kár- hólmar. Austurbrún Arnarstakksheiðar er yfirleitt bein frá norðri til suðurs. Hlíðar heiðarinnar að austan suður til Bólstaðar heita Flár, en landið austan árinnar Kerlingardalsflatir. Fyrir sunnan Kárhólma ibætast Vatnsá tvær smá-ár, og nefnist hún síðan Kerlingardalsá. — Inn í suðurbrún Arnarstakksheiðar (nú skipt í Víkur- og Arnarstakks-heiði) skerst djúpt gil, sem nefnist Öxnafótagil og liggur til norðvesturs á -að gizka einn þriðja hluta hennar, talið frá suðri til norðurs. Heiðinni hallar til norðurs og suðurs, og eru hallaskilin skammt sunnan-við Öxnafótabotnana. Tveir þriðjungar hennar liggja því við norðurátt, en að eins einn þriðji veit mót sólu. Er því megin heiðarinnar orðið með tímanum að grjóturð og moldarflögum. Hins vegar er suðurhalli hennar enn allgrösugur og fagur yfir að líta. Það ræður því að lík- ándum, að ég hafi ekki orðið margvís um þjóðvegaminjar frá fyrri tímum á norðurhalla heiðarinnar, enda engra minja þar nú að leita. En er við komum á hæðaskilin, er áður greinir, tóku við vallendis torfur allgrösugar beggja megin Öxnafótagils. Sáum við þá austan gils- ins allmikla götutroðninga, sem virtust koma úr átt frá Arnarstakki ■og stefndu ofan og austur hallann í áttina til Fagradalsklifs. Gátum við talið þar fullar 60 götur á breidd. Nú snerum við vestur að Öxna- ■fótagili, og hittum þar fyrir aðra götuslóða, og ekki minni; höfðum við ekki tóm til að rannsaka þessar götur lengra vestur, því að gilið var þarna ófært til yfirreiðar, og hefðum við því þurft að halda til baka all-langt norður á heiðina aftur, til þess að komast vestur-yfir. En það sáum við, að álíka troðningar lágu niður í gilið sem upp úr því. Töldum við okkar megin gilsins um 80 götur, og voru hinar yztu svo vallgrónar, að líkindi voru til, að margar væru þegar sokknar í jörðu. Héldum við síðan þessar götur beina leið að Fagradalsklifi. En skammt fyrir vestan það komu áðurgreindar götur úr norðvesturátt á þessar, sem frá Öxnafótagili komu. — Gengum við nú á Fagradalsklif. Ég hafði aldrei áður komið á Fagradalsklif. Ég hafði ætíð áður ihorft upp til Fagradals með Iotningu þeirri, sem fagurt listaverk vekur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.