Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Síða 20
20
hafa verið verið kljásteinar; þeir eru um 350—900 gr. að þyngd.
Eru það eygðir og urðir hraungrýtismolar. — Steinbrandsmoli svartur
fannst við austurvegg sunnarlega; hefir verið borinn inn, en varla
getað verið notaður. Áin hefir borið hann fram, ofan úr fjöllunum.
— í Drápuhlíðarfjalli er mikið lag af líkum steinbrandi, og finnast
þar stórir stofnbútar, steinrunnir. — Þar er einnig surtarbrandur,
hátt uppi. — En ekki er þessi moli þaðan. — Járnstykki ferstrent,
1. 9,2 cm., broddmyndað, fannst hér einnig í suðurendanum. Enn
fremur fundust þar 2 marglitir jaspismolar, sem hafa verið notaðir
fyrir eldtinnur; er annar 1125 gr., en hinn að eins 62. — Flatur, fer-
strendur steinn, sams konar og ferstrendi brýnissteinninn, sem fannst
í nyrðri bæjarleifunum, fannst hér einnig; hann er ekki með nein
merki þess, að brýnt hafi verið á honum, en sennilega hefir hann þó verið
til þess ætlaður og tekinn heim. Hann er 26,2 cm. að lengd, 6—8 að
breidd og um 3 að þykkt.
Tvö lítil brot fundust
enn fremur úr sams
konar brýnissteinum og
eru máðir fletir eftir
brýnslu á þeim báðum;
15. mynd. Örvaroddur. er hið stærra liðugir 8
cm. að lengd, endi af
brýni, 6,6 að breidd og 2,1 að þykkt; hitt er minna, en sjá má, að
það brýni hefir verið 6,7 að breidd og 2,5 að þykkt, og kunna því
bæði brotin að vera af sama brýninu. — í suðurhluta hússins fannst
einnig annar ferstrendur steinn, úr blágrýti, en rauðbrúnn að lit. Hann
er dálítið boginn, mjórri í annan endann og er þar sem sljó egg á,
en á hinum er skáflötur. Hann er að Iengd 47 cm., um 7—8 að br.
og 6—8 að þykkt. Hann virðist hafa verið notaður sem eins konar hæll,
eða jafnvel sem eins konar sleggja eða barefli, og þá bundinn í skaft. Að
minnsta kosti hefir hann verið hirtur og síðan notaður til einhvers
svo sem áhald. — Hjá langeldsstæðinu fannst auk eldtinnanna, kljá-
steina tveggja, járnbrots og brýnissteinsbrotsins minna, lítil, hvít tala
með gati á miðju, nær kringlótt, 2,2—2,3 cm. að þverm. og 0,4—0,6
að þykkt; virðist vera úr steini eða brenndum leir og er svo að sjá
sem hún hafi verið á steinasörvi eða gerð til þess. — Úti við vestur-
vegginn, út undan langeldinum, fannst enn fremur örvaroddur; hann
er 9,3 cm. að lengd og mun hafa verið vel 2 cn. að breidd þar sem
hann var breiðastur, um miðja fjöðrina. Hann er sem annað úr járni,
er hér fannst, bólginn af ryði og ummyndaður. — Úti á gólfinu þar
skammt frá fannst hausstór nagli, og um mitt hús fundust 4—5 aðrir