Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 47

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 47
Nokkrar forndysjar í Rangárþingi. Sem alkunnugt er, hefir allvíða blásið land í Rangárvaliasýslu. Langmest hefir kveðið að þessu í Landmannahreppi og á Rangár- völlum, en þó einnig nokkuð í Landeyjum. Þessi iandblástur eða upp- blástur hefir eflaust orsakast af frosti og harðindum upphaflega, sam- fara mikiu öskufalli, nýju eða gömlu, frá eldgosum, einkum í Heklu- fjalli, og i Landeyjunum þar að auki af sandi frá Þverá. Við upp- blásturinn og sandfokið hafa ýmsar jarðir farið í eyði, og er jarðveg- ur blés allur, urðu eftir leifar af bæjunum og öðrum húsum, girðingum og öðrum mannvirkjum úr grjóti, — svo sem vottur um blómlega byggð og sveitasælu fyr á öldum, þar sem nú eru að eins eyði- hraun og svartir sandar. Þegar jarðvegurinn blés á braut, hafa eflaust komið fram víða hjá bæjaleifunum fornar dysjaleifar, þar sem þeir menn höfðu verið heygðir, er þar dóu heima í heiðni, — eða þar sem þeir höfðu fallið í bardaga, t. d. dysjarnar við Rangá eystri, eftir bardaga Gunnars á Hlíðarenda og bræðra hans við þá, er sátu fyrir þeim við Knafahóla'). Því miður eru nú fáar þessara fornu dysja kunnar, og þó nokkrar frá síðastliðinni öld. Um flestar er ekkert kunnugt og fátt eitt til nú af þeim fornleifum, sem fundizt hafa í þeim. — í sumum bæjaleifunum hafa fundizt forngripir1 2), en minna en mátt hefði verða, því að þær voru ekki rannsakaðar þegar helzt skyldi eða jafnóðum og blés. Nú mun það helzti seint. Á síðustu árum hefir blásið upp nokkrar fornmanna dysjar á Landi og eina (með 2 hestsdysjum hjá) skammt frá Hemlu í Land- eyjum. Þykir rétt að skýra hér frá þessum fornleifafundum, því að* allt þess háttar þykir eiga bezt heima í árbókum Fornleifafélagsins. 1) Sbr. ritgerð Kr. Kálunds í Aarböger for nord. Oldkh. 1882, bls. 63—64. 2) Sbr. fyr-nefnda ritgerð eftir Kr. Kálund, bls. 73—75. — Ýmislegt hefir fundizt síðan hún var rituð, t. d. í bæjaleifunnm efst á Rangárvöljum og íl Vorsabæ forna í Landeyjum.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.