Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 89

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 89
89 18. Goðaborg heitir enn einn mikill klettur, húslagaður, luktur jökli, langt uppi í Hoffellsfjöllum í Nesjum. Þessi klettur gnæfir við bláloft, yfir flest, sem nærri er, og sést afar-víða að. Þessi Goðaborg er hof, og verja það landvættir og halda yfir því huldu. Verður hér sagt dæmi um það. — Smali nokkur frá Hoffelli elti forðum eina hvítasunnunótt ljónstygga sauði upp í Hoffellsfjöll og fram hjá Goða- borginni, og sá hann þá, að hún var hús mikið og hof. Stóðu dyr opnar og lá feiknar-mikið naut í þeim og varði innganginn. Það svaf og hraut hátt, og þótti honum jörð ganga skykkjum. Þar kafaði i sandi, er fyllti skó hans. Þar voru og, honum til undrunar, lauf nokkur. Tróð hann nokkru í vasa sína, og elti svo sauðina enn lengra og sigraði þá loks. Þá hellti hann sandinum úr skóm sínum, og sá, að hann var gullsandur. Þá hugaði hann í vasa sína og sá, að- laufin öll voru peningar. Hann varð auðugur maður. Sigfús Sigfússon.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.