Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Page 90
Um Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
í nágrannalöndum hefir um langt skeið, en einkum þó síðan um
•aldamótin, mikið verið að því unnið að safna örnefnum og skýra þau.
JÞykir það hvarvetna nauðsynjaverk og kemur bæði söguvisindum og
málvísindum að liði. Hér á landi hefir nokkuð verið gert í þessu efni
•og alls og alls er talsvert af örnefnafróðleik komið á prent. Þó er
•enn miklu meira óunnið, og æskilegt, að þar vildu sem flestir leggja
hönd á plóginn, enda má ætla að áhugi á þessu verki glæðist með
vaxandi alþýðumenningu. Það hlýtur hann að gera, ef sú menning
•er þjóðleg.
Það er að vísu ekki stórt svæði, sem Magnús Thorlacius hefir
markað sér í ritgerð sinni í síðustu Árbók Fornleifafélagsins, því að
því er örnefnaskrána snertir, er það bundið við Iandareign einnar
•einustu jarðar. Saurbæjar á Hvalfjarðarströnd. En örnefni í landi stað-
arins eru líka svo rækilega talin, að þar mun nú sem engu við að
bæta, enda sumt tekið, sem varla má til örnefna teljast. Hefir höf-
undurinn unnið þarft verk með örnefnaskrá sinni, því hvergi er meiri
hætta á að örnefni glatist eða ruglist en á prestsetrum. Nýr prestur
kemur oft úr fjarlægu héraði og allt heimilisfólk hans. Þó mun mörg-
um finnast meira til um hinn sögulega þátt ritgerðarinnar, sem ekki
er ofmælt að kalla prýðilegan. Hann ber höfundinum vott um ekki
lítinn hæfileika til að rannsaka og skýra sögulegar heimildir, og mjög
er það ósennilegt að niðurstöðunum verði nokkurn tíma haggað í nein-
um aðalatriðum.
Rétt þykir mér að benda á það, að staðhæfing höfundar um að
nafniið Oddsmýri sé dregið af lögun mýrarinnar, er sennilega gripin
úr lausu lofti og á misskilningi byggð. Fyrst og fremst er mýrin ekki
oddamynduð, enda þótt vera megi að tangi hafi verið vestarlega í
henni endur fyrir löngu, áður en Snekkja varð umflotin sjó, en ekki
virðast staðhættir benda til þess. Auk þess er það málvenjan að segja
oddi, en ekki oddur, enda er, Oddi (Æðaroddi, Oddakot) til í landi
staðarins norður-við Eyrarvatn. Ennfremur mun það fátítt að tala um