Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Page 95

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Page 95
Skýrsla. I. Aðalfundur 1931. Hann var haldinn 12. Des., kl. 6, í lestrarsal Þjóðskjalasafnsins. Formaður setti fund og minntist fjögra félagsmanna, er látizt hefðu siðan haldinn var síðasti aðalfundur, en þeir voru þessir: Daniel Bruun, fyrrum höfuðsmaður, Hellerup við Kaupmannh.. Jóhannes Sigfússon, fyrverandi yfirkennari, Reykjavík. Pétur Oddsson, Bolungarvík. Sighvatur Gr. Borgfirðingur, sagnaritari, Höfða í Dýrafirði. Fundarmenn risu úr sætum sínum og minntust hinna látnu félags- manna. Því næst gerði formaður stuttlega grein fyrir störfum félagsins,. útgáfu árbókar þess fyrir síðast-Iiðið og yfirstandandi ár. Er í henni. á bls. 108, prentaður reikningur félagsins fyrir árið 1930, athuga- semdalaus. Þá gerði féhirðir grein fyrir fjárhag félagsins. Samkvæmt reikn- ingnum fyrir 1930 átti það við lok þess árs 870,52 kr. í sparisjóði (i Landsbankanum), auk hins fasta félagssjóðs, sem nú er 3500,00 kr. Kostnaður við útgáfu árbókarinnar hafði orðið rúmar 2000,00 kr„ en tekjur það meiri en útgjöld, að nú væru 563,00 kr. í sjóði, og auk þess nokkuð ógreitt enn af tillögum síðastu ára. Kosning embættismanna fór á þá leið, að þeir voru allir endur- kosnir í einu hljóði, samkvæmt tillögu. Sömuleiðis varamennirnir, og þrír fulltrúar, sem úr skyldu ganga samkvæmt félagslögunum. Formaður lagði fram bréf frá 4 erlendum vísindafélögum, sem óskuðu að skiptast á ársritum við félagið. Var samþykkt að verða við tilmælum þeirra. Þá spurðist formaður fyrir um það, hvort ekki myndi heppilegt að senda út boðsbréf og skora á menn að ganga í félagið. Voru fundarmenn því meðmæltir og samþykktu það í einu hljóði. Loks fóru fram umræður um ýms félagsmál. Fleira var ekki. aðhafst og sagði formaður fundi slitið.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.