Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Page 31

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Page 31
31 ftósbygginguna á Þórarinsstöðum hafi verið sú sama, sem varðveitzt hefur í Búalögum, og að þar sé um forna lögalin að ræða. V. Hlaða. Aftur af fjósinu, hornrétt á það, er hlaða (eða hey- tóft?). Dyr ganga inn í hana af fjósinu, framan við fremsta bás að austan, 70 sm breiðar. Rétt innan við þær var stór hella, þunn og falleg, 57 sm breið og 80 sm löng. Hún hefur annaðhvort verið yfir hlöðudyrunum eða í þeim í hurðar stað. Hlaðan er 6,3 m löng og 2—2,2 m breið, með moldargólfi og 50—60 sm háum grjótveggj- um. Ekki var grafið frá suðurveggnum nema í hornunum og á einum stað nálægt miðju. VI. Kofi. I beinu framhaldi af fjósranghalanum er lítið hús, sem hér er kallað kofi. Það snýr eins og hlaðan og er 3,1 m langt norðan dyra, en 2,75 m langt sunnan dyra, af því að sá dyrakampur nær lengra inn. Suðurhlið kofans er öll hlaðin úr grjóti á venjulegan hátt, austurstafn og eystri hluti norðurhliðar eru úr stórum og þykkum hellum, sem reistar hafa verið á röð. Báðum megin við norðaustur- horn hefur verið torfveggur. Verður því ekki annað sagt en að gerð kofaveggjanna hafi verið ófullkomin og frumstæð, til hvers sem hann hefur verið notaður. Ef til vill hefur hann verið hesthús, en þó sáust þar engar jötur og ekki gólfskán, eins og vant er í rústum penings- húsa. Við austurstafn er ein stoðarhola, þar sem hellur þær mætast, sem mynda undirstöðu stafnsins. Það er lítið eitt norðar en fyrir miðju. Kofagólfið er hellulagt inn úr dyrum og vel inn á mitt gólf. Nú eru upp talin bæjarhúsin á Þórarinsstöðum. Allt bendir til, að bærinn hafi verið hugsaður og byggður í einni atrennu; viðbyggingar eða breytingar sjást hvergi nema í syðri útidyrum, og þess sjást alls engin merki, að bærinn hafi verið endurbyggður. Það má hiklaust telja, að þarna hafi þessi eini bær verið byggður og enginn annar, hvorki fyrr né síðar. Líkur eru einnig til, að hann hafi átt sér fremur skamman aldur. Húsin öll eru í ágætu ástandi og ekki nídd, eins og gömul hús vilja verða. Gólfskánir eru yfirleitt svo þunnar, að varla getur verið, að mannavist hafi verið langæ í bænum, þó að þetta sé ekki alveg öruggt kennimerki. Erfitt er að fullyrða nokkuð um þak húsanna. Víst er þó, að hellu- grjót hefur verið notað geysimikið í áreftis stað. í foklögum þeim, sem tóftirnar voru fullar af, var mjög mikið af þessum hellum, sumum mjög stórum. Sú stærsta er 65x116 sm, en með henni hefur senni- fega verið reft yfir bakdyr skála. I stofunni voru sumar hellurnar svartar af sóti, af því að þar hefur eldur oftast brunnið. Því var veitt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.