Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Blaðsíða 63
63
Hrunamannaafrétti hafi ekki verið byggðir fyrr en hálfri öld eða svo,
áður en ljósa vikurlagið féll, og skýra með því þá staðreynd, að bæj-
anna er hvergi getið í fornum ritum og að ekki hafa fundizt nema á
Skeljastöðum bæir byggðir hver ofan í annan. Þá staðreynd, að tveir
bæir á Hrunamannaafrétti, Laugar og Þórarinsstaðir, bera sömu nöfn
og tveir grannbæir niðri í Ytri-Hrepp mætti skýra með því, að grann-
ar af þessum Hreppsbæjum hafi tekið sig upp og flutt inn á afréttinn,
reist sér þar býli og gefið þeim nöfn bæjanna, sem þeir fluttu frá.
Vel getur þó verið, að hér sé um hreina tilviljun að ræða, þar sem
annað bæjarnafnið, Laugar, gefur sig sjálft vegna staðhátta. En um
örlög byggðanna beggja tala hinar ljósu vikurbreiður sínu þögla, en
ótvíræða máli. Ekki verður dregið í efa, að þær vikurbreiður stafa
frá Heklugosi. Elzta gos, sem komið gæti til greina, væri fyrsta gos
Heklu, síðan Island byggðist, gosið 1104 (1106). Væri engum heim-
ildum til að dreifa öðrum en ártölum gosanna, gæti, jarðfræðilega
séð, verið freistandi að álíta, að það mikla vikurgos, sem myndaði
Ijósa vikurlagið, væri fyrsta Heklugosið eftir margra alda hvíld, sam-
svarandi því gosi, sem eyddi Pompeii og Herculanum 79 e. Kr., en
það gos kom einnig eftir margra alda hvíld Monte Somma. Ekki
myndi þetta þó bjarga skoðun Steffensens um afdrif Þjórsárdals. En
ég sé ekki, að hægt sé að ganga fram hjá frásögn Einars Hafliðason-
ar, varðveittri í eigin handriti, um Heklugosið 1300. Og meðan ekki
finnst í jarðvegssniðum Þjórsárdals eða annars staðar í Hreppum
neitt það öskulag, yngra en ljósa vikurlagið, sem verið gæti frá gosi
því, er Einar Hafliðason lýsir, stendur óhögguð sú skoðun, að byggð-
irnar í innri hluta Þjórsárdals og á Hrunamannaafrétti hafi farið í
eyði vegna vikurfalls frá Heklu árið 1300.
SUMMARY
S. THORARINSSON: THE DEVASTATION
OF THE SETTLEMENT ON HRUNAMANNAAFRÉTTUR.
A TEPHROCHRONOLOGICAL STUDY.
In 1934 and the following summers the author aud Mr. Hákon Bjarnason,
Uirector of Foreslry, carried out studies on the extension and age of
volcanic asli layers in Icelandic soils. To carry these investigations further,
Ihe autlior studied the position of asli layers in relation to farm ruins, that
v.ere excavated in the Þjórsárdalur valley iu the suramer of 1939. It
einerged from these investigations, that the settlement in tlie inner part of
I’jórsárdalur was devasted l)y tlie Hekla eruplion of 1300 A. D.