Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Qupperneq 12
16
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Eflaust væri auðvelt að gera geislakolsmælingu á stafsendanum,
sem innan í falnum er, en tilgangslítið virðist það vera, þar sem
aldur þessa hlutar er hægt að greina miklu nánar með stíllegum
rökum en hægt væri með geislakolsaðferð. Þó væri fróðlegt að sjá
niðurstöðu um hlut, sem svo tiltölulega nákvæmt verður aldurs-
greindur stíllega.
Engin leið er að gera sér rökstudda grein fyrir, hvar þessi húnn
hefur verið búinn til. Úrnesstíllinn hefur verið allsráður um öll
Norðurlönd, þótt mjög mismikið sé varðveitt af hlutum í löndunum.
Hann hefur einnig átt sína blómgan á Englandi og Irlandi seint á
11. öld, eins og ljóst hefur verið sýnt af mörgum fræðimönnum.
Trúlegra virðist þó, að húnninn sé gerður á Norðurlöndum en Bret-
landseyjum, en það mundi vera út í bláinn að reyna að kveða nánar
á en þetta. Því er jafnvel ekkert til fyrirstöðu, að hann sé gerður
hér á landi, en ekki er heldur neitt sérstakt, sem bendir til þess,
nema þá það að hann fannst hér, en það sannar hvorki til né frá.
4
Verkið á þessum hlut er athyglisvert, en þó sætir meiri tíðindum
eðli hans sjálfs og ætlunarverk. Þetta er bagall, baculus episcopalis,
eða réttara sagt húnn af bagli, af þeirri tegund sem í fræðum er
neíndur tá-bagall, stundum tá-kross, af því að hann minnir oft á
stafinn T, sem á grísku heitir tá (tau, á ensku tau-crosier eða tau-
cross, eða aðeins Tau). Bagall er, eins og kunnugt er, kirkjusiðalegt
hefðartákn biskups eða ábóta, fengið biskupi í hendur af vígsluföður
við vígsluna, en ábóta þegar hann er blessaður. Bagallinn er notaður
við kirkjulegar athafnir eftir settum reglum, sem óþarft er að rekja
hér, í rómversk-kaþólsku kirkjunni, grísk-kaþólsku kirkjunni og
anglíkönsku kirkjunni. Fyrst kvað bagall vera nefndur sem valds-
tákn biskups í sambandi við fjórða kirkjuþingið í Toledo 633, en
vitað er þó að saga hans nær lengra aftur í tímann eða aftur á 5.
öld, að minnsta kosti, en öldum saman eða fram á 13. öld var engin
festa komin á form hans og stærð.0
I nágrannalöndum vorum hefur elzt vitneskja geymzt um bagla á
Irlandi. Þeir sjást oft á myndsteinum og myndskreyttum steinkross-
um a. m. k. aftur á 8. öld. Þessir fornu írsku baglar voru stuttir og
mjög líkir göngustaf með krók. Svipaðir baglar munu hafa verið til á
meginlandinu, en þar þekkjast víst ekki eldri dæmi en frá 9. öld.10