Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Side 90
94
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
DRAUMAR UM SUMARMÁL
Fyrstu spurningarnar hljóðuðu svo: Hvernig dreymdi menn fyrir
sumri? Var þar við eitthvað ákveðið að miða í draumaráðningum ?
Almennt virðist ekki hafa verið tekið mikið mark á draumum í
sambandi vð sumarkomu. Aðeins um helmingur (50) svarar þessum
spurningum yfirleitt, og af þeim eru 9, sem svara því einu til, að
enginn gaumur hafi verið að þessu gefinn. Af þeim sem eftir eru
svara 12 á þá leið, að fremur hafi menn dreymt fyrir veðri almennt
og árferði eða þá heyfeng, eldiviðarþurrki, málnytu o. s. frv., en ekki
beint sumrinu sem slíku, og þeir draumar gátu eins orðið eftir
sem fyrir sumarkomu. Eftir eru þá 29 eða tæpur þriðjungur, sem
telur menn hafa dreymt fyrir sumri. Af þeim eru aðeins 12, sem
telja sumardagsnóttina fyrstu með merkari draumnóttum. Hinir
telja fremur mark að því, sem ber í draumana nálægt sumarmálum
eða seinni hluta vetrar. En athyglisvert er, að nær allir þeir, sem
telja aðfaranótt sumardagsins fyrsta merka draumnótt, eru frá
austurhluta landsins, frá Eyjafirði að norðan til Öræfa að sunnan.
Er þó réttur helmingur allra svaranna frá þessu svæði. Eina undan-
tekningin er vestan frá Rauðasandi, og önnur er að vísu úr Mýrdal
þess efnis, að ganga mætti út frá því vísu, að ömbrugt yrði sumarið
þeim, sem örðugar hefði draumfarir þrjár síðustu nætur vetrarins.
Niðurstaðan virðist því helzt sú, að lítið eitt hafi kveðið að því,
að menn tækju mark á draumum fyrstu sumarnótt öðrum fremur, og
þá helzt um austurhluta landsins. Víðar töldu menn sig einfaldlega
dreyma fyrir sumri, og var það þó ekki miklu algengara en fyrir
öðrum árstíðum, veðri, skepnuhöldum eða daglátum. Eða líkt og
einn svarandi úr Breiðafjarðareyjum kemst að orði: „Suma var
alltaf að dreyma. Aðrir sváfu draumlaust.“
Engin sérstök regla virðist á því, hversu túlka skyldi drauma fyrir
sumri. Langalgengast er, að hver ráði þá eftir eigin höfði, eða eins
og heimildarmaður einn af Fljótsdalshéraði orðar það: „Ráðningar
voru með ýmsum hætti og viðmiðanir margvíslegar." Þó örlar rétt
á því, að athugavert sé að dreyma unga konu eða stúlku nær sumar-
málum. Er það þá væntanlega ímynd sumarsins eða Harpa. Gott
var að dreyma broshýra skartklædda konu, segir maður úr Hnappa-
dalssýslu, og austur í Meðallandi þótti betra að dreyma dökkbúna
konu en ljósbúna. 1 heimild frá Rauðasandi segir svipaða sögu:
Kæmi ung stúlka fram í draumi fyrstu sumarnótt, mátti segja fyrir
um sumarið af hegðan hennar, augnatilliti, yfirbragði, ferðaáætlun,