Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Qupperneq 2
6
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ljósi á margt sem ella væri hulið. Og mikið verk bíður fornleifa-
fræðinga. Hins vegar mun fornleifafræðin að mestu láta ósvarað
þeirri spurningu, hvernig uppbyggingu og innansmíð horfinna ís-
lenskra húsa var háttað. Er þá nokkur von til að þeirri spurningu
verði svarað?
Auðvitað getur ekkert komið í stað húsanna sjálfra. Eftir tveim
leiðum er þó mögulegt að öðlast fyllri mynd af fornum horfnum
húsum en ætla mætti í fyrstu. Sú fyrri er að athuga skrifleg gögn, hin
síðari að kanna það sem enn stendur, einkum þó búta og brot gamalla
bygginga er finnast kunna innan um annað nýrra. Sem betur fer
eru enn til hús á íslandi sem geyma slíkar fornminjar, t. d. leifar
torfbæjarins á Stóru-ökrum í Skagafirði. Skemmst er frá því að
segja að innan dyra þar er að finna einhverjar merkustu minjar
fornrar íslenskrar trésmíðar sem til eru, auk þess sem húsin sjálf,
bæjardyr, gangapartur og stofa, eru merk í sjálfu sér. Torfhús þessi,
sem talin eru að stofni til frá dögum Skúla fógeta, lét þjóðminja-
vörður friðlýsa árið 1954. Ég kom fyrst að Stóru-ökrum sumarið
1965 eftir vísbendingu þáverandi þjóðminjavarðar, dr. Kristjáns
Eldjárns. Mér varð strax Ijóst að innan um og saman við nýrri viði
húsanna voru brot af eldri byggingaleifum, sumum hverjum mjög
fornlegum, sem varpað gætu birtu á margt í gamalli innansmíð. Af
þeim ástæðum mældi ég upp og ljósmyndaði torfbæjarleifarnar á
Stóru-Ökrum sumarið eftir. Enn kom ég þar með Lúðvík Kristjáns-
syni sagnfræðingi í ágúst árið 1967 til frekari athugana. Loks gerði
ég síðustu ferð að Stóru-ökrum í öryggis skyni í nóvember 1975
þegar ég var að ganga frá þessari ritgerð.
Segir nú nánar frá rannsókn þessari hér á eftir. Fyi’st mun hús-
unum sjálfum verða lýst með teikningum og texta. Þarnæst athugað
hvað ráða megi af gömlum viðarleifum, sem þar finnast í bland, um
forna innansmíð, um leið og tilraun verður gerð til að setja hana í
víðara samhengi. Loks er svo saga húsanna rakin og könnuð staða
þeirra í íslenskri húsagerðarsögu.
II
Leifar torfbæjarins á Stóru-ökrum eru þessar: 1. bæjardyr,
2. göng og 3. stofa, sem einnig hefur verið notuð sem þinghús. Húsin
snúa til vesturs. Dymar eru norðanvert við stofu (1. mynd, teikning
I—V). Torfveggir eru hlaðnir úr streng á lága steinhleðslu. Vegg-
irnir hafa oft verið gildaðir upp, seinast er gagngerð viðgerð fór