Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Page 83

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Page 83
„TEIGSKIRKJU TILEINKUÐ" 87 Páll, f. um 1680 og Gunnlaugur, f. um 1686. Þeir bræður voru allir settir til mennta, lærðu í Hólaskóla, fóru síðan til náms við Hafnar- háskóla eins og faðir þeirra og urðu allir attestati í guðfræði. Hjalti og Jón innrituðust við háskólann 2. nóvember 1698; kom Hjalti út aftur 1699, en Jón árið 1700. Um vorið sama ár fékk Hjalti vonar- bréf fyrir Saurbæ, og vígðist hann 1703 aðstoðarprestur föður síns. Jón fékk vonarbréf fyrir Barði í Fljótum vorið 1701, en vígðist aldrei. Yngri bræðurnir tveir, Páll og Gunnlaugur, voru skráðir í stúdenta- tölu í Höfn 28. nóvember 1704 og komu báðir út 1705. Fékk Páll vonarbréf fyrir Höskuldsstöðum vorið 1706, en hlaut ekki vígslu fremur en Jón bróðir hans. Hjalti og Jón kvæntust 11. október 1705 systrunum önnu og Elínu, dætrum Björns sýslumanns Pálssonar að Espihóli (d. 1680). Hafði Hjalti fengið konungsleyfi, útgefið í mars sama ár, til að eiga önnu. Má af orðalagi leyfisins sjá, að Magnúsi á Espihóli, bróður hennar, hafi lítt verið um ráðahag þennan gefið, þótt ástæðna sé ekki getið. Frá giftingum þessum segir Ragnheiður Jónsdóttir, biskupsekkja í Gröf, í bréfi til bróður síns, séra Sigurðar í Holti í önundarfirði, 17. október 1705 : „Næstliðinn 18. sunnudag eftir Trinittatis] voru haldin 2 brúðkaup að Saurbæ í Eyjafirði, sem voru þeirra systra, önnu mtinnar] og Elenar Björnsdætra, frændkvenna okkar. Sannast það á þeirra gift- ing að margt fari öðruvísi en ætlað er, þar þeir bræður séra Hjalti og Jón urðu þeirra brúðgumar. Og er þó varla að undra það, þar eð guð mun víst fyrir þessu ráðið hafa. Séra Hjalti m[inn] er nú til kallsins kominn eftir sinn sál. föður. En Jón bíður eftir Barðstað í Fljótum, og munu þau Elín m[ín] og hann setjast að eignarjörð önnu mCinnar], Æsustöðum. .. . Boðin var ég til þeirra brúðkaups í ákafasta máta, en varð þó að neita vegna óveðuráttarinnar og ófærðar vegarins. Guð gefi þeim verði að gæfu og góðum notum þessi ráðahagur." Sumarið 1707 kom upp Stóra bóla í landinu. Létust úr henni um haustið bræðurnir allir fjórir, eiginkonur Hjalta og Jóns og dóttir Hjalta og önnu, Ragnheiður, er fæðst hafði þá um vorið. Svo segir Guðmundur Gíslason í Melgerði um lát séra Hjalta: .. . „en á næsta hausti ... sál[aðist] hann í Stóru bóluna & einnin hans egtakvinna og þeirra unga dóttir. Þeirra líkamir eru grafnir við kórþilið í Saurbæjarkirkjugarði.“1 Páll og Gunnlaugur dóu ókvæntir og barn- lausir. Ein dóttir séra Jóns Hjaltasonar, Elín (f. um 1679), fyrri kona séra Jóns Einarssonar á Skinnastöðum, lést einnig úr bólunni, en tvær lifðu: Þórunn (f. um 1683), gift séra Þorgrími Jónssyni á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.