Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Side 113
SKÝRINGAR YFIR ÖRNEFNI
117
Fyrir austan Melshöfðann sjást 2 hæðir nálægt ánni og á annarri
tóftarmót líkt nausti. Eins getur það hafa verið gamlar búðartóftir
og nú orðnar sléttar af sandfoki og sjáist því ekki nú nema sléttar
hæðir. Þessi árós er í sumum gömlum lögfestum kallaður TJxárós19
og er það gömul sögn, að áin hafi þá runnið mikið vestar í gegnum
Böggvestaðasand út í sjó, sem landamerki milli Böggvestaða og Háls
benda til. Enn má fara á haffærum skipum upp í ána með stór-
straumsflóðum, og líka hafa þiljuskip nokkrum sinnum verið sett
upp í ána og sett svo á land þar á vetrum nokkuð fyrir neðan Mels-
höfðann, í Hálshorni. — Nú er áin aftur búin að grafa út úr sand-
inum vestar líkt og til forna og hætt við að setja þar skip upp. Þessi
nýi árfarvegur gi’ófst 1. og 2. júlí 1865 í aftakamiklum vatnaleys-
ingum, svo menn mundu ekki annan eins, og skemmdust víða jarðir
af skriðum og vatngangi.20
20. Ósland: 1 Skagafirði, sá bær ber sama nafn enn og Óslands-
hlíð kennd við bæinn.
15. kapítuli.
21. Höskuldsstaðir: Það bæjarnafn er nú ekki til í Svarfaðardal
eður í Vaðlasýslu. Má þó líklegt þykja, að sá bær hafi verið til, því
hans er getið tvisvar í Svarfdælu og að bærinn hafi fengið nafn af
Höskuldi lögmanni.21 1 10. kapítula getur Svarfdæla Höskuldar
þanninn: „Sá maður bjó í dalnum er Höskuldur hét; hann var lög-
maður; þar voru jafnan þing, og má enn sjá þar merki (til). Er því
10 Lítt hug-sanlegt virðist að ós Svarfaðardalsár hafi nokkurn tíma verið
nefndur Uxárós. 1 Sturlunga sögu, Reykjavík 1946, I, bls. 551—552, hef
ég bent á að það örnefni hljóti að eiga við ós Hálsár, sem einhvern tíma
hefur runnið í sjó fram í sérstökum farvegi, þótt hún falli nú í Svarfaðardalsá
skammt ofan við ós hennar.
Frásögninni af nýja árfarveginum frá „Nú er áin ....“, hefur Þ. Þ. bætt
við síðar, á spássíu. Sýnir þetta með vissu að hann hefur verið húinn að
skrifa ritgerð sína fyrir þessi miklu flóð, en gallinn er sá, að dagsetning
eða ársetning eða hvort tveggja hlýtur að vera rangt. Dagbækur frá þeim
tima sem nefndur er, m. a. Þorsteins sjálfs, sýna að engir vatnavextir voru 1.
og 2. júlí 1865.
31 Ef bær með nafninu Höskuldsstaðir hefur einhvern tíma verið til í Svarf-
aðardal, hlýtur hann að vera einhver þeirra bæja sem í dalnum eru og þá
með breyttu nafni, því að meiri háttar eyðibýli er ekkert í dalnum. Ósenni-
legt virðist að nokkurn tíma skýrist hvernig stendur á þessu óvænta bæjar-
nafni í Svarfdælu. Hugleiðingar Þ. Þ. um þetta efni virðast óraunhæfar.