Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Page 115
SKÝRINGAR YFIR ÖRNEFNI
119
af hálfa girðinguna eður réttina svo varla verður mæld stærð hennar.
Réttin hefur verið kringlótt og á að giska að hún hafi verið í þver-
mál 8—10 faðma, þar sem hún hefur verið breiðust, hefur þá lík
legast verið réttað þar úr báðum dölunum.25 Gömul munnmæli eru
að Strandamenn og Dala hafi skipst þar á skreið og sauðfé á haust-
um við réttina, og er sú sögn líkleg, því nafnið bendir líka til þess.
24. Teigsfjall: Sá bær er nú í eyði,2G en sjást tóftir miklar og
hefur bærinn staðið undir Teigsfjalli, sem enn er svo kallað (sjá
Ölaví Reisubók, blaðs. 328). Þetta land eður Teigurinn liggur undir
kirkjustaðinn Urðir, sem standa rétt á móti vestan við Svarfaðar-
dalsá.
25. Klaufabrekkur og Klaufanes: Síðari bústaðir Klaufa. Sá
síðarnefndi bær er ekki til og hefur líklega ekki verið byggður síðan
Klaufi yfirgaf hann, en bæjai’tóftir sjást sunnarlega í nesinu niður
við ána og halda menn, að bærinn hafi staðið þar Nesið er kallað
Klaufanes. Það hefur vei’ið illt útsjónar frá bænum þar í nesinu, og
því hefur Klaufi flutt hann út og upp á brekkurnar, þar sem hann
stendur enn og heitir Klaufabrekkur. Þar er mjög gott útsjónar á
hafa klætt hlíðarnar svo stórvaxinn að skip hafði verið smiðað af viðum
þeim er felldir voru“. Einnig segir í skránni að forn og furðulega hár
garður liggi upp frá Kaupskapshvammi og að svonefndum Þilhúsvelli,
yst og efst á Tungufellstúni. 1 örnefnaskrá Jóh. Óla Sæmundssonar frá 1965
er Kaupskapshvammur sagður rétt utar en Tunguréttin, þ. e. skilaréttin sem
nú er, en rétt þar fyrir utan séu rústir Syðra-Tungukots. Þetta er ekki rétt
staðsetning. Hvammurinn er rétt fyrir sunnan (en ekki utan við) réttina.
í örnefnaskrá sama manns frá sama ári, skrifaðri eftir mjög góðum upp-
lýsingum Tryggva Jóhannssonar á Ytrahvarfi, er svo hvammurinn kallaður
KaupstaSarhvammur. Sú mynd er nær afbrigði Þ. Þ., og kynni það að benda
til þess að það sé upphaflegast, enda elst heimild fyrir því. Gunnar Rögn-
valdsson í Dæli segir eindregið (28. 9. 1975) að hvammurinn heiti Kaup-
staðshvammur.
25 þ. e. Skíðadal og Svarfaðardal.
í öllum útgáfum Svarfdælu er gert ráð fyrir að Teigsfjall hafi verið bær
undir samnefndu fjalli andspænis Urðum, hinum megin við ána. Byggist
þetta á orðum sögunnar: „Þá voru lögréttir út i Tungunni, og ráku féið til
réttarinnar feðgar tveir úr Teigsfjalli“, Eyfirðinga sögur 1956, bls. 164. Ef
til vill þarf þó ekki að skilja þetta öðru vísi en svo að feðgar þessir hafi
verið að reka til réttarinnar fé það sem þeir höfðu smalað saman í Teigs-
fjalli. Á þessum stað er ekki líklegt bæjarstæði; auk þess gróf ég ofan í
rústirnar í könnunar skyni sumarið 1940 og taldi mig komast að þeirri
niðurstöðu að þarna hefði ekki verið bær. Rétt er þó að þetta mál standi enn
opið, því að fleiri heimildir koma til greina, þótt ekki þyki ástæða til að fara
nánar út í það hér.