Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Blaðsíða 137
SKÝESLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1974
141
Helsinki 11.—15. ág’úst. Þá sótti hann (ásamt Hallfreði Eiríkssyni
frá Árnastofnun) „den 1 :a nordiska arkiv- och dokumentations-
konferensen“, sem haldinn var í Hásselbyhöll í Stokkhólmi 23.—26.
september. Að hálfnaðri þeirri ráðstefnu var haldið til Visegrád í
Ungverjalandi, þar sem haldinn var 5. vinnufundurinn um gerð
evrópskra þjóðfræðikorta (Ethnologischer Atlas) 23.—28. sept.
Stundakennslu í þjóðháttafræði við Sagnfræðistofnun Háskóla Is-
lands var haldið áfram og annaðist Árni Björnsson hana.
Ennfremur voru sem áður hafðir reglulegir þættir um þjóðfræði-
leg efni í Ríkisútvarpinu og leitað upplýsinga hjá almenningi gegnum
þann fjölmiðil.“
Sýningar og adsólcn.
Á árinu komu 45.670 skráðir gestir í safnið, en alltaf koma tals-
vert margir utan reglulegs sýningai’tíma sem engar tölur eru til um.
Skólanemendur í Reykjavík á síðasta ári skyldunáms heimsóttu
safnið á sama hátt og verið hefur undanfarin ár og annaðist Þórir
Sigurðsson námsstjóri þær lieimsóknir. Sýningartími safnsins var
hinn sami og verið hefur mörg undanfarin ár, frá miðjum maí til
miðs september á hverjum degi frá kl. 13.30—16.00, en á öðrum
árstímum annan hvern dag, þ. e. sunnudaga, þriðjudaga, fimmtu-
daga og laugardaga, á sama tíma.
Safnið hafði sjálft enga sérsýningu á árinu en það lánaði allmargt
sýningargripa á sýninguna Islensk list í 1100 ár, sem haldin var á
Kj arvalsstöðum um sumarið í tilefni 1100 ára afmælis fslands-
byggðar. Voru þar margir merkustu gripir safnsins, enda var sýn-
ingin afar vönduð og hlaut mikið lof. Þar var einnig margt gripa
annars staðar frá svo og íslenskir gripir úr erlendum söfnum.
Bogasalur var lánaður talsvert til sýninga svo sem verið hefur, og
voru eftirtaldar sýningar þar:
Myndir eftir tékknesk börn, 5.—13. janúar.
Svartlist frá þýska alþýðulýðveldinu, 19.—26. janúar.
Yfirlitssýning á verkum Gísla Kolbeinssonar, 2. — 10. febrúar.
Málverkasýning til styrktar æskulýðsstarfsemi skátafélagsins Faxa
í Vestmannaeyjum, 16.—24. febrúar.
Matthea Jónsdóttir, málverkasýning, 9.—17. nóvember.
Karl Sæmundsson, málverkasýning, 23. nóv.—1. des.