Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Síða 35
LILJA ÁRNADÓTTIR
KÚABÓT í ÁLFTAVERI VIII
Aldursákvörðun
Nú skulu tínd til atriði, sem sagt geta til um aldur bæjarrústanna í
Kúabót.
Húsaskipan bendir til þess, að bærinn sé frá miðöldum. Hcnni svipar
til þess sem við þekkjum frá Gröf í Öræfum, sem lagðist í eyði 1362 við
öskufall frá gosi í Öræfajökli.14 Bærinn í Kúabót er þó allmiklu stærri
í sniðum en í Gröf enda hefur verið þar kirkjustaður. Um nákvæmari
tímasetningu innan miðaldanna vcrður að leita fanga í gjóskulagafræð-
inni og íhuga hvort einhver fundinna forngripa veiti svör varðandi
tímasetninguna. Það skal þó tekið fram, að enn cr ýmislcgt órannsakað
í sambandi við munina.
Kötlugosum fylgja jökulhlaup sem flæða yfir stór svæði á Mýrdals-
sandi og valda tjóni á því landi og mannvirkjum sem fyrir verða. Auð-
scð var að bærinn hefur farið í cyði eftir jökulhlaup, scm m.a. skildi
cftir sig rúmlega 25 cm lag af lcir og sandi á gólfum í frambænum, það
lag var nú undir rofum úr þökum. Tímasetning á gosinu, sem olli þcssu
hlaupi, væri jafnframt tímasetning á eyðingu bæjarins.
Engin þekkjanlcg gjóskulög fundust við uppgröftinn á frambænum
árin 1972 og 1973.1:1 Árið 1974 þegar baðstofan var rannsökuð komu í
Ijós kekkir í suðurvegg hcnnar með svörtu gjóskulagi. Auk þess fannst
í moldinni smávegis af ljósum gjóskukornum, sams konar og þau sem
mynda gjóskulagið úr Öræfajökli 1362. Niðurstöður jarðfræðinga voru
þær að gjóskulagið væri úr Kötlugosinu 1416.K’ Hægt var að sjá, að svarta
gjóskulagið var á 2-3 cm dýpi í kökkunum17 og má ætla, að þeir hafi
verið stungnir alllöngu síðar, e.t.v. 20-40 árum eftir gosið.18 Þar af
leiðir, að a.m.k. baðstofan hcfur verið hlaðin eftir 1416, sennilcga á
14. Gísli Gcstsson: Gröf í Öræfum, Árbók hins íslenzka fornlcifafclags, Rvk. 1960, bls. 5-87.
15. Sbr. dagbækur Gísla Gcstssonar um uppgröftinn í Kúabót.
16. Guðrún Larscn: Grcinargcrð um gjóskurannsóknir í Kúabót I og Sigurður Rórarinsson: Grcinar-
gcrð um gjóskurannsóknir í Kúabót II, óprcntaðar skýrslur.
17. Guðrún Larscn: sama hcimild.
18. Gísli Gcstsson: Fjórar baðstofur, Minjar og mcnntir. Afmælisrit hclgað Kristjáni Eldjárn 6. dcs-
cmbcr 1976, Rvk. 1976, bls. 197.
7