Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 35

Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 35
NORÐURLJÓSIÐ 35 hann: „Sjá, ég kem skjótt, .... ég er Alfa og Ómega, hinn fyrsti og hinn síöasti, upphafið og endirinn.“ Guð (Jahve) segir: „Eg er hinn fyrsti og hinn síðasti.“ Jesús frá Nazaret segir: „Ég er hinn fyrsti og hinn síð- asti.“ Guð seg.ir: „Ég er Alfa og Ómega.“ (Opinb. 1. 8.). Jesús segir: „Ég er Alfa og Ómega.“ Með því að staðhæfa þetta gerir hann sig eitt með Guði. Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum, sem sýna, að það, sem biblían segir um Guð (Jahve, Drottin), segir hún einnig um Jesúm frá Nazaret. Af þessu er oss ætlað að þekkja guðdóm Drottins Jesú Krists. Annað dæmi má nefna: Við skulum lesa og íhuga Jes. 43. 11.: „Ég er Jahve (Drottinn), og eng.inn frelsari er til nema ég.“ Jóel 3. 5.: „Hver, sem ákallar nafn Jahve (Drottins) mun frelsast.“ Hér er sagt, að enginn frelsari sé til, nema Jahve og að hver, sem ákallar nafn hans, muni frelsast. Berum þetta saman við Post. 4. 12., þar sem Pétur postuli segir um Jesúm frá Nazaret: „Og ekki er hjálp- ræðið í neinum öðrum, því að eigi er heldur annað nafn undir himninum, sem oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða.“ I gamla testamentinu er hjálpræð.ið, frelsunin hjá Jahve, í nýja testamentinu er ekki hjálpræðið í neinum öðrum en Jesú Kristi. Þeir, sem ekki vilja þiggja hjálpræði hjá Jesú Kristi, geta ekki fengið það annars staðar, af því að hann er „hinn mikli Guð og frelsari vor.“ Ritsmíð þessi yrði alltof löng, ef tæma skyldi það, sem biblían sýnir og kennir, að Jahve (Drottinn) gamla testa- mentisins er Jesús Kristur nýja testamentisins. Skal vísa þeim, sem meira vilja lesa um þetta efni, til bókar minnar: „Höfundur trúar vorrar.“ Jesús vor einnig sonnur moður. En spurningunni: „Hver var Jesús frá Nazaret?“ væri ekki að fullu svarað, ef gengið væri framhjá því, að hann var ekki aðeins Guð. Hann var einnig maður. Hann fædd- ist sem lítið barn, óx og þroskaðist. Hann hungraði og þyrsti, neytti matar og drykkjar og svaf. Hann grét og hann var glaður. Hann leið og dó. Hann talaði um líkama sinn og kallaði sjálfan sig einu sinni mann, einmitt þeg- ar hann var að leggja áherzlu á guðdóm sinn. (Jóh. 8. 40. Sbr. 21.—24. og 58. v. í sama kafla.). Það er ástæðulaust að rita meira um það, að Jesús frá Nazaret var maður. Menn deila ekki um það nú á dögum, heldur deila þeir um guðdóm hans. Þar hafa þeir margra spurninga að spyrja, meðal annarra: „Hvernig gat Jesús verið bæði Guð og maður?“ Guð er meiri skilningi vorum. Þetta er að sjálfsögðu leyndardómur, en gæti Guð ver- ið sannur Guð, ef við gætum gert fulla grein fyrir honum með skilningi okkar? Til þess yrðum við að vera eins mikil og hann, eða hann eins smár og við. Við verðum því að svara, eins og stendur í Jobsbók: „Getur þú náð til botns í Guði?“ (11. 7.). Eða segja með Prédikaran- um: „Ég virti fyrir mér þá þraut, sem Guð hefir fengið mönnunum að þreyta sig á. Allt hefir hann gert hagfellt á sínum tíma, jafnvel eilífðina hefir hann lagt í brjóst þeirra; aðeins fœr maðurinn ekki skilið það verk, sem Guð gerir, frá upphafi til enda.“ (3. 10., 11.). Eigi að síður getur það ef til vill hjálpað eitthvað skiln- ingi okkar, ef við minnumst þess, sem ritað er í Jer. 23. 24.: „Uppfylli ég ekki himin og jörð? — segir Jahve (Drottinn).“ Þar sem nú Drottinn uppfyllir bæði himin og jörð, er alls staðar nálægur, var það hið auðveldasta af öllu fyrir hann að vera hér sem Jesús frá Nazaret og halda þó áfram að vera á himni. Og í Jóh. 3. 13. stendur að Jesús sagði: „Og þó hefir enginn stigið upp til him- ins, nema sá, er niður sté af himni, manns-sonur.inn, sem er á himni.“ Satt er það, að orðin „sem er á himni,“ eru ekki í öllum handritum heilagrar ritn.ingar. En þau geta verið töluð af Jesú, af því að Guð er bæði á himni og jörðu, jörðu og himni samtím.is. Sbr. Sálm. 139. 5., 8.: „Þú umlykur mig á bak og brjóst.“ „Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar.“ Motbórum svarað. Sumir spyrja: „Hvernig gat Jesús verið Guð, úr því að hann sagði: „Paðirinn er mér meiri.“? Sannar þetta ekki, að hann var alls ekki Guð?“ Hvenær talaði Jesús þessi orð? Talaði hann þau, með- an hann var í dýrð sinni hjá Guði, áður en heimurinn varð til? Auðvitað ekki. Hann talaði þau, þegar hann var hér á jörðu. Hann talaði þau eftir þann atburð, þeg- ar hann afklæddist Guðs-mynd sinni. Þau voru töluð, meðan hann kom fram að ytra hætti sem maður. Um þetta lesum við í Fil. 2. 5.—11. Engin orð, sem hann talaði hér á jörðu, geta afsannað það, að hann var Guð, sé þessi mikla staðreynd höfð í huga, að þau eru töluð, með- an hann kemur fram að ytra hætti sem maður. Menn hafa reynt að nota orð, sem postulinn Páll skrif- aði, til að afsanna það, að Drottinn Jesús sé eilífur Guð. Þetta er ekki rétt meðferð á orðum Páls. Menn verða að muna, að hann talar um Jesúm sem hinn mikla Guð og frelsara vorn, eins og áður er vitnað til. í ljósi þessara orða Páls ber að skoða annað, sem hann hefir sagt, og skýra það í samræmi við þau. Það er líka léttur vandi að gera það. Menn hafa reynt að nota ýmislegt annað til að afsanna það, að Jesús frá Nazaret var og er sannur Guð, t. d. orð- in í Jesaja 53: „Jahve (Drottinn) lét misgerð vor allra koma niður á honum,“ lagði á hann refsinguna fyrir synd- ir vorar. Eftir þessari röksemd er hver maður, sem lætur á sig byrði eða leggur á sig meinlæti, orðinn að tveimur aðskildum einstaklingum! Allar tilraunir til að gera að engu eilífan guðdóm Jesú frá Nazaret falla fyrr eða síðar um sjálfar sig. Þær ættu að falla nú þegar í huga þínum, falla fyrir þeirri stað- reynd, að hinn eilífi, mikli Guð, sem sjálfur sagði: „Dýrð mína gef ég eigi öðrum,“ hann lætur alheiminn færa Jesú frá Nazaret, — nú upphöfnum í þá dýrð, sem hann hafði áður, — hina sömu dýrð, vegsemd og tilbeiðslu, sem hann lætur allt hið skapaða færa sjálfum sér. „Það sem því Guð hefir tengt saman, má eigi maður sundur skilja,“ má heimfæra hér. Guð hefir tengt sam-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.