Óðinn - 01.01.1933, Side 39
ÓÐINN
39
urhugurinn vildi oss vel. En þá er jeg loks
kominn að þungamiðju þessarar hugleiðingar.
Er móðurástin vitur eða er hún óframsýn og
grunnfær? Er hún samanburðar- og hjegóma-
gjörn eða fer hún sínu fram til að ná háu og
göfugu marki fyrir elskað afkvæmi? Er hún
hyggin, frækin og djörf, sem felur sigurinn I sjer,
eins og hjá dýrinu hreina, prúða og sjálfstæða,
er ól afkvæmi sitt í háfjöllum, í helgri móður-
gleði, eða er hún í ætt við erjur og slettireku-
skap hinnar skepnunnar, er sakir vanþroska
síns og vitsmunaskorts grunar um græsku að
ástæðulausu, og stofnar sjer og sínum í ævar-
andi dauða?
Ýms mikilmenni veraldarinnar tileinka móður
sinni veg sinn og lífshamingju, að það hafi verið
hún, sem lagt hafi undirstöðuna að gæfu þeirra
og gengi í lífinu, að það hafi verið hún, sem
búið hafi þeim þá brynju, er best hafi dugað
þeim á orustuvelli lifsins. Hversu margur hefur
ekki getað og mun ekki geta tekið sjer í munn
orð skáldsins Matth. Jochumssonar um upp-
runa lífsgildis síns og lífshamingju, er hann
mælir eftír látna móður: ».........Mitt andans
skrúð var skorið af þjer, — sú skyrtan best
hefur dugað mjer — við stormana, helið og
hjúpinn.ct
Sjerhver sá, sem tekið getur sjer í munn þessi
orð, samkvæmt reynslu, hefur haft að segja af
hinni viturlegu móðurást. Það er hún, sem læt-
ur skynsemina ávalt vera við stýrið, en tilfinn-
ingarnar, þó heitar sjeu, aldrei ná lengra en að
vera hásetana á bát lífs-hamingjunnar. f*að er
hún, sem þorir að tala um hið illa valdið í
heiminum við barnið sitt, þau óhollu, sundrandi
öfl, sem að því sækja, um vigtennur rándýrsins,
er vilja rífa það á hol, eftir að hin mjúku tök
móður-handarinnar hafa um það farið og gert
það grunlaust um annað en gott í veröldinni.
Það er hún, sem þorir að gera greinarmun á
valdi guðs og satans, svo að barnið kunni skil
á þessum tveimur öflum, er það mætir þeim f
lífinu. Með hliðsjón á hættunni hlúir hún að
afkvæmi sínu, og gengur frá því í bæn til guðs
um nýjan aukinn styrk til að berjast til sigurs
fyrir það. Hin vitra móðir er samverkamaður
guðs að sigri þess afkvæmis, er hún hefur alið.
Hin óvitra móðir gerir samanburð við aðra
og slær af kröfunum. Hún leggur það eigi á sig
að koma afsprengi sinu fyrir í klettagjá, í lík-
ingu talað, því hún hyggur öllu óhætt; hún
hefur það á bersvæði hefðar og tildurs, en hirðir
eigi um óvininn, sem bíður eftir bráðinni, varn-
arlausri, með eigi svo mikið sem lauf eða lyng
til skjóls. Hún fær eigi hrósað þeim sigri, að
ganga óhult með afkvæmi sitt eftir klöppunum,
þar sem jarðvegurinn er traustur, og þar sem
öllu er óhætt, mót upprennandi morgunsól
sællar hamingju þess, er hún ann meira en
sjálfri sjer.
Þjer mæður og þjer, sem eigið eftir að verða
mæðurl Lærið af þeirri móður, sem barðist til
þrautar — og til sigurs — á Arran-eynni við
Skotlandsströnd. Látið eigi hugfallast þó þjer
riðið við af ofsóknum óvinarins, og yður liggi
við að hniga til jarðar fyrir ofureflinu. Varð-
veitið hið heilaga, sigurvænlega aflið í brjóstum
yðar og gerið það svo máttugt, að óvinurinn
fái aldrei náð að koma áformi sínu fram um
að tortíma því, er þjer hafið mestu fórnað og
yður er kærst.
Gerist því vitrar mæður og framsýnar — og
herskáar — ef óvinurinn nasar í veðrið.
ólafur ólafsson,
Kvennabrekku.
Sjera Ólafur Stephensen
og frú hans.
Sjera ólafur Stephensen, nú á Auðnum á
Vatnsleysuströnd, verður sjötugur á þessu ári.
Hann er fæddur í Viðey 24. júlí 1883, sonur
Magnúsar ólafssonar Stephensen og konu hans,
Áslaugar Eiriksdóttur sýslumanns Sverrissonar.
Bjuggu þau foreldrar sjera ólafs í Viðey, og
hafði eyjan lengi verið í eigu þeirra Stephensen-
anna. Ólafur varð stúdent 1884 og útskrifaðist
af Prestaskólanum 1886.
Á sama ári voru honum veitt Mýrdalsþing.
Vigðist hann þangað 12. september 1886 og
þjónaði því prestakalli í fjögur ár. Bjó hann
þá á Hvammi í Mýrdal. En vorið 1890 fjekk
hann Mosfellsprestakall i Mosfellssveit og var
þar fram til 1904. Bjó hann fyrst á Mosfelli og
síðar á Lágafelli. Snemma á ári 1904 fjekk hann
lausn frá prestskap vegna gigtaeiki, og fór þar að
ráðum Guðmundar Björnssonar, síðar landlæknis.