Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Page 17

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Page 17
17 konúngs var ekki og varð aldrei svo mikið, að hver og einn einstakur maður væri ekki eins fullkomlega persónulega frjáls, sem áður. Það er og svo gott að vita, að Haraldur virti aunga menn jafnmikils sem s k á 1 d sín; skyldi þ a ð eftirdæmi hafa verið til hnekkis fyrir norskan skáldskap? Auðvitað flýðu margir stórbokkar land, en á hinu er heldur eing- inn vafi, að það varð eftir f Noregi allur fjöldinn af landslýðnum; það vóru að eins einstök hjeruð sem svo mart fór úr, að á þvi bæri, og úr mjög raörgum hjeruðum Noregs kom næsta fátt eða ekk- ert til íslands. Þetta skáldskapar-hnekkis-ok BMÓ er alveg gripið úr lausu loftinu. Það voru aungvir hneptir svo í dróma, að þeir gætu ekki súngið, eingvir saungfuglar i búri. — Þar að auki sýngja saungfuglar opt, þótt í búri sje, það er svo gott að vita. Með því að taka fram friðartímana á dögum þeirra Haralds og Hákonar feðga, hef jeg að eins viljað benda á, að skilyrðin fyrir tilorðníngu Eddu- skáldskaparins, eins og hann heimtar þau eftir minni skoðun, s j e t i 1 — í Noregi. Að heiðin trú hafi verið veik hjá Islendíng- um á 10. öld, — því held jeg fastlega fram, og að skynsemistrú eða trúarleysi hafi verið allríkust, er víst; að kristnin festi þar ekki rætur, þótt einstöku landsnámsmenn væru kristnir, heldur hvarf fljótlega og dó út, sýnir ekki k r a p t heiðninnar, heldur að þessir kristnu menn gerðu ekkert tii þess að breiða hana út og lifðu út af fyrir sig, en allur hinn þorri landsmanna hjelt af vanafestu við heiðnina, að svo miklu leyti sem þeir voru ekki trúarlausir með öllu. Að einstöku menn hafi verið stækir trú- menn, neita jeg ekki. Jeg hef haldið því fram, að 2

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.