Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Page 32

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Page 32
32 efa um sannleika þeirra«. Annaðhvort hefur höfundurinn verið kristinn og þá getur hann ekki hafa haft »djúpa lotníngu« fyrir heiðnum goðum (sá trúarblendingur, sem BMO visar til, er alt ann- ars kyns, og ber sist af öllu vott um innilega trú á hvoruga hliðina, heldur miklu fremur trúleysi); eða. hann hefur verið heiðinn, og þá getur hann ekki hafa verið s v o gagntekinn af kristnum sið, sem endirinn á Völuspá bendir til, ef hann höndlar um Krist, efsta dóm og eilífa sælu. Jeg gæti tilfært ótal dæmi upp á það, hve djúpa fyrirlitníngu virkilega kristnir menn hafi hatt á athæfi heiðíngja. Hjer er sterk og óleysandi mótsögn hjá BMO sjálf- um. Jeg skal bæta því við, að ef V.spá er ort af kristnum manni, er kvæðið með öllu óskiljandi, hvort heldur sem það er ort í Noregi eða á Islandi.. Og það er skylda BMO og þeirra, sem hans flokk. vilja fylla, að myndast við að gera einhverja grein fyrir því, hvernig þeir hugsi sjer kvæðið til orðið, hver hafi verið hugsun skáldsins og tilgángur osfrv.;; annars er skilníngur þeirra á siðustu vísunum út I bláinn og einskis virði. Jeg hef reynt til að heim- færa V.spá til vissra tima og skýra kvæðið og skilja eftir þeim tímum — og skoðun mín, þótt til- gátu-skoðun sje, stendur óhrakin, og læt jeg svo úttalað um Völuspá að sinni, svo að þetta svar mitt verði ekki alt of lángt.1 1) BMÓ skrifar og móti skoðun minni á völunum, sem jeg hef rökstutt í ritgjörð minni í »Þremur ritgjörðum«, og visa jeg til hennar. Ummæli K. Maurers og BMÓ hafa ekkií haggað skoðun minni hið minsta, og mætti vera, að jeg skrifaði sjerstaklega um það mál, áður lángt um líður. —• Bls. 99 segir BMÓ rjett, að vísan Bræðr munu berjast osfrv..

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.