Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Page 83

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Page 83
83 ura höll Grjúkunga. Ekki hefur grænlenska skáldið, sem orti Atlamál, hugsað sjer það, þar sera hann lætur Goðrúnu segja, að þau Högni hafi vaxið upp í lundi (sbr. hjer að framan). FJ. finst það skáld- legt að láta Brjrahildi sampínast náttúrunni, ganga um kalda staði, þegar henni er sjálfri kalt í skapi. Enn er slík sampíning milli mannsins og náttúrunn- ar ekki alveg dæmalaus í fornum kveðskap? FJ. hefur ekki bent á neitt líkt dæmi. Jeg verð því ab halda mjer við mína skoðun, að isa og jökla sje eignarfall fleirtölu og stjórnist af fylld, þó með þeirri breitingu, að jeg held nú ekki framar, að jökull þíði hjer ísstöngul, heldur hjer um bil sama, sem vjer köllum klaka. I sögu Hákonar gamla segir Sturla Þórðarson, að vin, sem konungur átti, hafi frosið- í verplum, og hafi hestasveinar konungs tekið verpl- ana og brotið, «síðan tóku þeir jöklana (= hið frosna vfn) ok brœddu, en suma átu þeir« (Fms. IX 345). í Sturlungu segir, að Hvamms-Sturla hafi beðið menn sína bera svo »öxarsköpt sín at eigi leggi jökul (= klaka) a« (Sturl.2 I, 64. bls.) og í Grettlu, að þeir fóstbræður Þormóðr og Þorgeirr hafi sett upp skipið »með öllum sjánum, þeim sem i var, ok jöklinum (= klakanum utan á skipinu), en þat var mjök sýlt«. Og sama higg jeg sje þíðing orðsins í Hymiskviðu 10. er., þar sem það er haft um klakaskegg Hymis (abr. »karls við freðið klalcaskegg | kœrust dóttir hlœr« Stgr. Thorsteinsson), og eins á þessum stað í Sigurð- arkviðu. Þá getur FJ. ekki framar sagt, að það sje nokkur »hringlandi innan í aumingja mannin- um«! Þröngsíni og einfeldnisleg skoðun á hinum gömlu sögnum er ekki framar grænlensk enn íslensk. Jeg vil í þessu efni benda FJ. á Bárðars. 7. k. 14. bls., þar sem þess er getið, að »þat segi nökkurir d*

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.