Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Page 88
Yíg Spányerja á Yestfjörðum 1615
og „Spönsku yísur4
eptir séra Ólaf á Söndum.
Samið af
Ólafi Davíðssyni.
í bandritasafni hins íslenzka Bókmentafélags
i Kaupmannahöfn nr. 37, 8vo er, meðal annars, kafli
með fyrirsögninni: »Sönn frásaga af Spanskra skip-
brotum hér við land Anno 1615«. Handritið er með'
nýlegri hendi mitt á milli snarhandar og fljótaskriptar.
Ekki er mér ljóst, hver hefir ritað það, en í skýrsl-
unni um handritasafn félagsins stendur, að það sé
skrifað í Eyafirði. Kaflinn er all-lángur, 18 blöð
(bls. 308—344). Ekki er þess getið í handritinu
eptir hvern hann er, en telja má alveg áreiðanlegt
að hann sé eptir Jón Gruðmundsson, sem optast er
kallaður Jón lærði. Hann nefnir sig reyndar hvergi
í þættinum, en það sést samt á ýmsu, sem stendur
þar, að hann hefir samið hann og einginn annar.
Jón Sigurðsson heflr látið Þorlák Ó. Jóhnson, kaup-
mann, skrifa upp fyrir sig þáttinn eptir 37. Afskript
þessi er nú nr. 533 í safni Jóns á Landsbókasafninu
og eptir henni er þátturinn prentaður í Fjallkonunni