Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Page 96

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Page 96
96 lendis. Hann segir þannig, að meginþorrinn af skipum Spánverja, sem voru við ísland 1615, hafi haldið »heim til Moscoviam«, en það er mjög rángt, ,því Moskóvía þýðir Rússland. Menn hafa fyrst sögur af Spánverjum — eg held nafninu — við Island 1613. Þetta ár og næsta ár komu ýms hvalveiðaskip að Vestfjörðum og gerðu skipverjar þar talsverðar óspektir með hnupli og gripdeildum. Ekki er annars getið en Íslendíngar hafi látið þá hlutlausa, en aptur hafa þeir eflaust kvartað undan þeim, þvi 30. apríl 1615 gefur Krist- ján konúngur IV. út bréf um Spánverja, sem kunni að vekja óspektir á Islandi eða í hafinu kríngum það. Bréf þetta er reyndar til prentað á tveimur stöðum, í Hist. Eccl. III, bls. 80—81 og í lagasafni Magnúsar Ketilssonar, Forordninger og Aabne Breve II. Hrappsey 1778, bls. 261, en báðar þessar bækur eru í fárra manna höndum, og tek eg því hér upp þýðingu á bréflnu: Um Baska1 og aðra, sem sýna landsbúum ofríki og vinna þeim tjón. Vér Christján IV. o. s. frv. lýsum því yfir, að vér höfum feingið vitneskju um að seinasta sumar hafi Baskar og aðrar þjóðir feíngizt við hvalveiðar í hafi voru og krúnunnar við ísland, að þeir hafi rænt þegna vora þar í landinu, rekið þá frá heimilum sínum og unnið þeim mikið mein og tjón. Og svo að hægt sje að hrinda af sér og varna slíku ofríki og ráni,. þá höfum vér af náð vorri leyft og lofað lénsmanni vorum á hinu fyrnefnda landi voru, Islandi, og þegnum vorum, 1) »Bischaier«.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.