Eimreiðin - 01.05.1903, Blaðsíða 9
8g
Fram undan Neðribúðinni er hin gamla Tostrupsbryggja.
Hún er fræg, þó hún sé ekki stór, því að undanteknum húsum
fyrir vörur sínar og bryggjustúfnum, sem stendur út undan efsta
húsinu og fyr er nefndur, þá er þetta eina mannvirkið, sem V. T.
Thostrup hefir látið eftir sig hér eftir 27 ár og hún er svo, að
Ernst lyfsali kvað eitt sinn hafa sagt, að út á hana skyldi enginn
maður hætta sér, nema hann hefði trygt líf sitt áður, og sagði
hann sumt ósannara. Nú setur Tórarinti þar nýja bryggju þegar
minst varir, og því ekki seinna vænna að bjarga minningu Tho-
strup’s og bryggjunnar. Sunnar litlu sér yfir Rasmussen á eitt
vöruhús Tórarins. Tað er bygt í flæðarmáli og varnar því, að
strandgata geti nokkru sinni komið á Oldunni fyrr en það er rifið
eða kveykt í því. — Sunnan undir því er bæjarstofnun, þar sem
karlmenn geta skotist inn til skjótra þarfinda sittna, og gæti Seyð-
isfj. verið þar góð fyrirmynd Rvík og hinum borgunum, þar sem
allir eru í vandræðum og neyðast til að ganga allra ertnda sinna
í hvert afdrep sem fæst.
Tá sézt hvítur húsgafl með svartri rönd slcamt norður frá
lóninu. Tað er Bindindishúsið, en svarta röndin sýnir þak á
lægra parti, sem leikfélagið hefir bygt aftan við húsið og haft er
fyrir leiksvið, er húsið sjálft þá áhorfendasalur. Par eru og haldn-
ir fundir, tombólur, dansar og guðsþjónustur á vetrum. Tar
messaði Bojsen sáluhjálpari, Östlund, Einar Jochumsson o. fl.
Húsið er mesta þarfindahús. Ear bak við og ofar á túninu er
Hótel Kr. Hallgrímssonar, og ekki á myndinni. Pað er laglegt
hús og hefir þann kost, að það hefir rúmgóðan billíard- og funda-
sal, en ekki dugar að gera til þess allar nútíðarkröfur. Tar bak
við sjást tvö svört þök lítil og nærri jafnstór koma suður undan.
Tað nyrðra er Nielsenshús bókhaldara og svila Pórarins kaupm.
og mun hann hafa látið byggja það sjálfur. Nielsen er hæstur
maður á Seyðisf. Hið syðra er Ingimundarhús. Ingim. er
hagsýnn og sparsamur og segja sumir hann eigi peninga. Petta
hús stóð víst úti hjá Norskubúð og var flutt þaðan eftir snjóflóð-
ið. En beint aftur af Bindindish. er Skálanes og ekki á mynd-
inni. Pað bygði Jón á Skálanesi 1897 og veitti þar kaffi og óá-
fengi einn vetur. Nú er það pósthús. Tað þekkist á rauðum
vindlakassa, sem negldur er þar utan á. Par er Anna Stephen-
sen póststjóri og hann mörgum betri.1
1 Nú, 1903, er póstafgreiðsla í hinu nýja húsi J. Stephensens innan við Leiruna.