Eimreiðin - 01.05.1903, Blaðsíða 18
98
hefir margur félegur sauður skift um þjóðerni og hætt að vera
Islendingur. Par upp af sést Steinholt. Pað er gistihús og
veitingar óáfengar. Pá er búin Búðareyri og þó ótalin fáein
smáhýsi.
Par fyrir utan kemur lítil vík, Forvaðavík, nú oft nefnd
Vatnavík, því þar bygði O. Wathne lítið hús 1868 eða 9, til að
stunda frá síldarveiði, en hætti svo við. Par hjá bygði Hakon
Madsen frá Stafangri síðar hús og er alt saman því oft kallað
Madsenshús, en O. W. hefir aukið við hús og bryggjur og lét
vinnulið sitt hafa þar aðsetur. Petta sést á myndinni og ber
bryggjubarkurinn í húsin. Yzt á Oddanum sést Köhlershús,
sem áður er getið.
Húsin á Ströndinni hylur Strandartindsbungan. Pau flest
bygðu Norðmenn um og eftir 1880. Nagelshús reisti Nagel
frá Haugasundi. Par er nú stórskipabryggja. Oanes bygði
eitt. Pað á nú Síldarfél. Seyðisfj. »Flísafélagið«. Eitt bygði
Falk, annað Sömme. Pau eru rifin, en á hússtæði Falk's er nú
Frosthús Imsland’s, og þar sem Imsland’shús standa nú, bygði
G. A. Jonassen frá Stafangri Síldarhús 1880, IJar bygðu og
Thomsen og Berentzen 1880.
Pá er komið á hreppsendann hér, og fáum við okkur þá bát
og bregðum okkur snöggvast yfir fjörðinn til Vestdalseyrar, því
Einar Hallgrímsson verzlunarstjóra verðum við að sækja heim;
hans líki heim að sækja er ekki á hverjum firði.
VESTDALSEYRI. Tar verður varla greint á myndinni
nema kirkjan og búð Gránufélagsins. fað er stóra húsið niðri
við sjóinn. Par er fram af væn bátabryggja. Tar ríkir Einar
Hallgrímsson og mun nú hafa einna mesta verzlun hér. Hann er
drengur góður og höfðingi heim að sækja.
Par á Eyrinni bygðu þeir Örum & Wulff fyrst verzlunarhús
1851, og kaupa þá landið undir húsin og Eyrina þar í kring um
sig. Peir vóru áður á Eskifirði. Á Eyrinni reka þeir verzlun til
1865. Tá kaupa húsin Thomas Roys og Liljendal, hvalfangarar
frá Ameríku og veiða hér hvali um 2—3 ár. Af þeim kaupir þá
Hammer, danskur hvalfangari, og ætlar að halda því áfram, en