Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1903, Blaðsíða 60

Eimreiðin - 01.05.1903, Blaðsíða 60
140 Þaðan að Tjörnum............................. */* st. reið Frá Eystripollum að Tjörnum.................. 4^/2 — Frá Tjörnum til Akureyrar.................... 8—10 — Þess skal enn fremur getið, að úr Eyjafirði má ríða til Laugafells gegnum Sölvadal og f’ormóðsdal upp á hálendið. En í sjálfum dölunum er þó vegurinn ógreiðfær; aftur kvað hann ekki vera neitt afleitur, þegar komið er upp á hálendið, og þar eru að sögn fáeinar vörður. Einkum er brattinn ekki eins mikill og örðugur eins og upp frá Tjörnum. Sprengisandsvegurinn og þær leiðir er að honum liggja, eru eng- an veginn eins óttalegar og menn hafa haldið, Og hvergi þurfa menn að ríða meira en 8—10 stundir milli áningarstaða. V. G. Ny rit um náttúru íslands. Á hverju ári birtast nú nýjar ritgjörðir um ýmsar greinir af náttúrufræði íslands eftir íslendinga sjálfa og er það gleðilegur vottur um vaknandi á- huga og framkvæmdir. Rit þessi standa í vísindalegri nákvæmni fullkom- lega jafnfætis erlendum ritum um náttúru annarra landa í sömu greinum. Hér skulum vér stuttlega geta þriggja rita um grasafræði og dýrafræði íslands. Stefán Stefánsson hefir í samfélagi við sænskan náttúru- fræðing H. G. Söderbaum gefið út ritgjörð um íslenzkar fóður- jurtir: »Islándska foder- och betesváxter« (Meddelanden frán kongl. Landbruks-Akademiens Experimentalfált, Stockholm 1902, No: 74, 50 bls. 8°). Stefán hefir safnað hinum íslenzku fóðurgrösum og ritað um þau alment, en Söderbaum hefir rannsakað efni þeirra á efnafræðis- stofnun sænskra búnaðarvísinda í Stokkhólmi. Það liggur í augum uppi, hve afar-þýðingarmikið það er fyrir framfarir íslenzks búnaðar að fá fulla vitneskju um efnasamsetningu íslenzkra fóðurjurta og næringar- gildi þeirra fyrir fénaðinn. Island er svo sérstaklegt í mörgum grein- um, að verulegar framfarir í búnaði verða að byggjast á innlendum tilraunum og reynslu. Slikt er nú enn hjá oss alt í byrjun og bernsku. í rannsókn jurtanna virðist oss Stefán hafa farið rétta leið, hina einu, sem fær var eftir kringumstæðum; hann hefir sjálfur safnað og athug- að, en sent síðan fóðurjurtirnar til ágætrar erlendrar stofnunar og látið rannsaka þær þar. Þetta mun um langan aldur verða hentugasti og langódýrasti vegurinn fyrir oss, því innlend efnafræðisstofnun mundi verða mjög dýr, ef hún ætti að vera í nokkru lagi; þó hentugur mað- ur fengist, yrðu rannsóknirnar alt af miklu ófullkomnari en hjá erlend- um stofnunum, sem hafa öll hugsanleg hjálparmeðul, langa reynslu, marga vísindamenn og mikið fé til umráða.t 1 byrjun ritgjörðarinnar er stutt landslagslýsing og yfirlit yfir jarðvegsefni samkvæmt rannsókn- um þeim, sem P. Feilberg hefir látið gjöra, þá er getið um loftslag og almennan jurtagróður og svo um graslendi og mýrar; þá er yfirlit yfir efnasamsetningu íslenzkra grasa og skýrt frá rannsókn hinna ein- stöku tegunda. Þar er ýtarlega lýst sex tegundum túngrasa, sjö teg- undum hálfgrasa, einni seftegund, einum sauðlauk, einni víðirtegund og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.