Eimreiðin - 01.05.1903, Blaðsíða 54
134
> JO u
^ :0 00
bfi'Z
O cj S
3“ 1
Ih * ■
cj 10^2
% a
S._. x
O ac •
sinn hérumbil mílu frá henni, til þess að forðast
sandbleytu við bakkana í nokkrum smáám. Eftir
31/* st. reið nálgast menn aftur Þjórsá og koma þá
eftir 1/a st. reið áfram í góða haga, við Hvanna-
gil. Litlu norðar eru aðrir hagar rétt við Þjórsá;
er hægt að finna þá, því þar er fallegur foss í ánni
milli hólma og eyja. Er sá foss ýmist kallaður
Hvannagilsfoss eða Kjálkaversfoss, og er
seinna nafnið dregið af Kjálkaveri, sem liggur þar
beint á móti.
Frá Sóleyjarhöfða að Hvannagili 4
st. reið
Frá Hvannagili er haldið áfram í suður og rið-
ið burt frá Þjórsá austur fyrir Búðarháls, Er þá
fyrst farið yfir Svartá og síðan riðið niður undir
Köldukvísl, straumharða jökulkvísl, sem vart er fær
svo sunnarlega (ef til vill við Illugaver, í landnorðri).
Við Köldukvísl eru lélegir hagar, Klifshagavellir,
og er þar bygður kofi.
Frá Hvannagili að Klifshagavöllum 2
st. reið.
Frá Klifshagavöllum er riðið fram með Köldu-
kvísl í útsuður með Búðarháls á hægri bönd til ár-
mótanna, þar sem Kaldakvísl fellur í Tungnaá, og
þaðan fram með henni, unz hún fellur í Þjórsá, og
eru þar hagar. Yfir Tungnaá er farið á ferju. Þar
eru sem stendur tveir bátar, sem notaðir eru af
smölum á vorin og haustin. En þeir eru vanalega
báðir við syðri bakkann, svo ekki verður komist
yfir að norðan. Annar þeirra ætti að vera við
nyrðri bakkann.
Frá Tungná er halðið áfram til næsta bæjar
fyrir sunnan, Galtarlæk.
Þjórsá.
sem nú
IV. Arnarfellsleiðin Geti menn, þegar komið
er að sunnan, ekki komist yfir Þjórsá við Sóleyjar-
höfða, eða þykist menn, þegar komið er að norðan,
sjá, að það sé ómögulegt, ættu menn að leggja
leið sína fram með röndinni á Hofsjökli, því þá
geta menn farið yfir jökulkvíslarnar eina og eina í
senn, áður en vatnsmegn þeirra allra kemur saman
í Þjórsá.
Þegar menn koma að norðan, sveigja
„• menn þegar komið er yfir Fjórðungakvísl, lengra
vestur á bóginn yfir að aðaluppsprettu Þjórsár (vörð-
ur sýna, hvar leiðin liggur út úr), og er þá fyrst
farið yfir nokkrar hæðir, sem lengi vel skyggja á
Er þá aðallega stefnt dálítið fyrir norðan Arnarfell it mikla,
ber mest á. Síðan er farið yfir Þjórsá og því næst allar hinar