Eimreiðin - 01.05.1903, Blaðsíða 35
tímaeining til, af því tíminn er óendanlegt hugtak«.. Menn ganga
út frá varanlegleik einhvers tóns í hverju lagi sem einingu og
mæla lengd hinna tónanna í hlutfalli við hann. Hvort sem lagið
er sungið hratt eða hægt, þá breytist lagið ekki, ef hlutfallið milli
einingarinnar og annarra tóna lagsins er rétt. Samt sem áður er
einingin táknuð á ýmsa vegu; í einu laginu er hún heilnóta, í
öðru hálfnóta, í þriðja fjórðungsnóta, o. s. frv. Petta telur höf.
villandi og óþarflega flókið. Hann vill tákna eininguna alt af og
alstaðar á einn veg. Til skýringar því, sem að framan er ritað,
set ég byrjunina á alkunnu lagi (i. rödd), eins og það er prent-
að í söngbók, sem Jörgen Malling gaf út »fyrir hið danska Chevé-
félag:
Andante con moto. Sol-dur (M. 54=47").
mf.
8 0 j-3 3 2 1 1233217.2 2 7 1 2 . 1 3 . 1
Þú blá-ijalla geimur með heið-jökla! hring, um há-sumar |flý ég þér að
6 .
hjart-
5 0. s. frv.
a
Hvað sem menn kunna að segja um öll þessi boðorð, þá
verður því ekki neitað, að þessi aðferð hefir átt öflugan þátt í því
að hrinda utanaðkenslunni fyrir ætternisstapa og koma söngfræðis-
kenslunni í skynsamlegt og praktiskt horf, og á þann hátt hef-
ir hún orðið að miklu gagni; en að öðru leyti virðist mér hún
hálfgerður gallagripur. Eg sé ekki betur en að það væri óðs
manns æði, að slá striki yfir allar nótur, þegar um söngkenslu er
að ræða. í rauninni yrði það aðeins til þess, að menn neyddust
til að læra tvö mál í staðinn fyrir eitt, því það væri til lítils, að
kunna að syngja eftir tölum, á meðan öll sönglög og yfir höfuð
að tala öll tónljóð eru skrásett með nótnaletri. Pað væri vitlegt
að hnappast saman undir nýjan Babelsturn og koma ringulreið á
eina alheimsmálið, sem eftir er. Sá aðalkostur, sem talletrið á
að hafa, að með því losni menn við alla dúra og molla, hann er
í rauninni aðeins í orði kveðnu. Peir, sem vilja halda í nótna-
letrið, þekkja heldur ekki nema eins konar dúr og moll. D-dúr er
nákvæmlega eins bygður eins og C-dúr, E-moll alveg eins og
C-moll o. s. frv. Pað eru sömu tóntegundirnar, aðeins með
ýmsum nöfnum eftir því, við hvaða frumtón miðað er.
Og að því er taktmerkin snertir, sé ég heldur ekki að breytt
8*