Eimreiðin - 01.01.1912, Síða 6
6
Konur i fornöld.
Alþýðuerindi1
Eftir GUÐMUND FRIÐJÓNSSON.
Mannkynssagan er nokkurskonar skuggsjá, sem mannlífið sézt í,
það sem verið hefir á liðnum öldum. Reyndar sýnir hún þó ekki
nema yfirborðið. Sagnaritararnir hafa sjaldan verið sjónarvottar
eða heyrnarvottar atburðanna, sem þeir hafa fært í letur, heldur
hafa þeir farið oftast nær eftir sögusögnum.—-Sagnaritararnir hafa
og seilst mest eftir styrjaldar-atburðum og vígaferla, þessvegna
hefir mannkynssagan orðið styrjaldarsaga konunga og ribbalda,
fremur en saga mannlífsins út í yztu æsar. — Eg á hér einkum
við sögu löngu liðinna alda.
Meginþorri manna, sem lifði í fornöld, er nálega ókunnur okk-
ur, sem nú lifum. Vér sjáum hann eins og vér sjáum menn í
draumi. Einhver hula er yfir honum, og vér verðum að sjá í
í eyðurnar, til þess vér getum gert okkur grein fyrir þjóðinni,
sem vinnur, utan við kóngsgarðinn og víkingabælin.
Ró er sú bót í þessu máli, að sagan er rituð þannig á sumum
stöðum, að hægt er að lesa milli línanna á spjöldum hennar ýmis-
legt, sem verpur ljósi yfir þjóðlífið í löndunum og hversdagshætti
almennings. Sumir menn eiga í vitum sínum nokkurskonar sjón-
auka, eða langsjá, sem þeir rýna í og sjá með atburði og hætti
manna, sem lifðu endur fyrir löngu. Pessir menn eru nefndir sagn-
fræðingar, og eru þeir sporrækir menn, og kunna þó að villast
stundum.
Vér Islendingar eru sagnaþjóð frá fornu fari. En sagnfræðinga
höfum vér þó fáa átt, sem heitið geta því nafni. Nú er þó kom-
inn sá maður fram á sjónarsviðið, sem heitið getur því nafni, þar
1 Þó að margt sé að athuga við fyrirlestra þessa (hinn siðari kemur í næsta
hefti) frá vísindalegu sjónarmiði, þá áhtum vér réttast að prenta þá athugasemda-
laust, — til þess að spilla ekki nautninni af lestrinum. Þeir eru alþýðuerindi,
sem margir munu hafa gaman af að sjá. Reir sýna, hvernig íslenzkm- bóndi, skáld
og gáfumaður, á vorum dögum skilur þessi atriði i fornritum vorum. En þó að
margt sé þar skarplega og rétt athugað, þá mundu þó lærðir menn í norrænum
fræðum ekki vilja samsinna öllu, sem þar er sagt. Eigi að síður munu jafnvel þeir
geta haft gaman af lestrinum.
RITSTJ.