Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 21
21
fróði nam að henni ýmsa fræði, og er þess getið berum orðum
í Islendingabók. Petta eru meira en líkur. Petta eru sannanir
fyrir því, að konur í fornöld hafa varðveitt sögur og kvæði í
minni sínu og kent fræði sín kynslóð eftir kynslóð, þangað til rit-
listin kom til sögunnar og kom skipulagi á alt saman. Pað sést
og á sögunum, að konur í fornöld vóru glöggskygnar á skáld-
skap og skildu torveldar vísur. — Gísli Súrsson var skáld gott og
reyndar með afbrigðum, enda var hann mesti listamaður í öllum
greinum, þótt hann væri ekki gæfumaður. Hann gerði vísu eina
um víg Porgríms goða, mágs síns, og gat þess þar, að hann
hefði vegið Porgrím. Sú vísa er svo torveld að skilja, að fáar
fornvísur eru þvílíkar að torveldi. Hann kvað vísuna einu sinni í
áheyrn systur sinnar, ekkju Porgríms. Og þá nam hún vísuna og
fékk ráðið hana.
Sú kona, sem þetta gat, hún hefir verið all-vel að sér ger og
glöggsæ á fornan fróðleik, skáldskap og goðafræöi. Og hún hefir
víst ekki verið ein sér um þessa hitu. Sögurnar þegja um þau
efni oftast nær, af því að þau snerta ekki söguþráðinn. En í
þetta sinn snart systir Gísla söguþráðinn með skilningi sínum á
vísunni; því að hún ljóstraði upp leyndarmáli Gísla og vígsökinni.
Og varð þessi djúpskygni konunnar undirrót að sekt Gísla, út-
legð og æfilokum.
*
*
*
Ég hefi nú fært ýmsar líkur að því, að fornmenn hafi skoð-
að konurnar svo sem jafningja sína, að hæfileikum og manngildi.
Peir fengu einnig að þreifa á því stundum, að þær vóru vel viti
bornar og skörungar í skapi. — Ragnar konungur loðbrók var
skáld, og hervíkingur svo mikill, að hann sigldi tveim knörum til
Englands og hugðist mundi leggja það undir sig með þessu litla
liði. Hann brendi skip sín, þegar hann kom fótum á land. Og er
það haft að orðtaki síðan, að sá maður hafi brent skip sín, sem
eigi hyggur á flótta. En kona hans, Áslaug drotning, var og
skáld, og hún fór í leiðangur til hefnda eftir stjúpsonu sína. Einar
þambarskelfir var afarmenni svo mikið, að hann barðist frækileg-
ast allra manna, sem vóru á Orminum langa, og þó var hann þá
ekki nema 18 vetra. Hann var og svo mikill kjarkmaður, ab hann