Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 24
24
Pá er Laxdælasaga — gulli búin að málsnild, en blóði drifin
og sársauka þrungin bak við málsnildina. Sú saga mætti reyndar
heita saga Guðrúnar Ósvífrsdóttur. Hún kemur svo mikið við þá
sögu. Guðrún er aðal-þungamiðja sögunnar og möndullinn, sem
atburðirnir velta á. Guðrún hafði alt til að bera, sem söguhetja
þurfti að hafa í fornöld, til þess að verða nafntoguð. Vit og skör-
ungsskap, heift og langrækni.
Njála og Laxdæla eru jafnan taldar fremstar Islendingasagna
að efni og búningi, og hefi ég drepið á, hve mikinn þátt kon-
urnar áttú í því, að þær sögur gerðust. Pá er enn Gíslasaga
Súrssonar, þriðja snildarsagan að ritlist og áhrifa-auðlegð. Engin
saga hefir gengið nær hjarta mínu en hún. Og harður verður sá
maður að vera, sem les hana með köldu blóði. Hún er saga
Auðar, konu Gísla, engu siður en saga hans, frá því fyrsta og
til hins síðasta dægurs, sem hannj lifði. Par er sú kona, sem er
bezt allra kvenna í fornum fræðum.
Sagan hefst verulega, þar sem konurnar sitja í dyngjunni,
húsfreyjur þeirra bræðra, Gísla og Lorkels, og halda á saumum
sínum. Pær hugðu sig vera einar og töluðu því margt. Pær töl-
uðu um ástir sínar, sem verið höfðu eitthvað á reiki — eins og
gengur og gerist.
Eti oft er í holti heyrandi nær. Porkell bóndi var þar hjá
dyngjunni og heyrði hvert orð. Hann heyrði það af vörum þeirra,
að kona hans hafði hug á öðrum manni. Og þótt hún léti þess
getið, að »engin mannskemd hefði fylgt þeim málum«, þoldi hann
þó ekki svo búið. Og af þessari kvennamælgi orsakaðist alt það
vígaferli, sem Gísli Súrsson vafðist í. Og af þeim sökum varð
hann skógarmaður og loksins hlaut hann bana af þessu gáleysis-
hjali kvennanna.
Annars var Gísli sjálfur lausmáll, þótt snildarmaður væri fyr-
ir flestra hluta sakir. Hann kom mannsmorði upp um sjálfan sig
á þann hátt, að hann kvað vísu eina, sem lýsti víginu á hendur
honum. Vísan var afartorskilin. En Pórdís systir hans heyrði
hana og skildi. Og hún ljóstraði málinu upp.
Pá varð Gísli sekur skógarmaður og fór huldu höfði. Pá
komu fram kvenkostir konu hans. Hún fylgdi honum í útlegðinni
öðru hverju. Og seinast fór hún með honum upp á kleifarnar í
Geirþjófsfirði og barðist þar með honum við ofurefli og hafði
trélurk að vopni.