Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 30

Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 30
3° Á Frakklandi hefir tekist að ná enn meiri hraða. Síðdegislestin frá París til Lille fer alla þá leið með 87 km. hraða að meðaltali, en til Arras er hraðinn 94 km. Fljótust allra langferða-lesta, sem enn eru til, er hin fræga Biarritz-hraðlest. Vegalengdin er 800 km., og meðalhraðinn 82,5 km., en til Bordeaux er hann 87 km. Morgunlestin til Marseille hefir líka rúmlega 82 km. meðalhraða, þó vegalengdin sé 800 km. Á Þýzkalandi eru fljótustu hraðlestirnar þær, sem ganga á millum Ber- línar og Halle og Berlínar og Hamborgar og hafa sumar þeirra 84— 88 km. hraða, en geta ekki haldið honum lengur en 2—3 kl.stundir. Á Suður-þýzkalandi er fljótasta lestin milli Offenbach og Karlsruhe með 87 km. hraða. í Bandaríkjunum er meðalhraði langferðalesta aldrei meiri en 60 — 70 km., og eru menn því 6^/2—7 daga á leiðinni milli San Fran- ciskó og New York yfir þvera Ameríku. En nú hafa tveir járnbrauta- kóngar tekið sig saman um að setja í gang hraðlest, er fari alla þessa leið á 5 dögum, og styttist þá ferðin um 36 kl.stundir. Mestum járn- brautahraða hafa menn í Bandaríkjunum náð við sérstök tækifæri, er járnbrautakóngar hafa þurft að flýta sér að dánarbeði ættingja eða þvíumlíkt. Þannig fór einusinni einn þeirra á milli New York og Chica- gó á 16-72 kl st. að meðtöldum stuttum viðdvölum á nokkrum milli- stöðvum. Vegalengdin er 1543 km. og hefir því meðalhraðinn verið 93 km. Annar fór á 77 mínútum milli Buffaló og Erie, og þar sem vegalengdin er 140,8 km., hefir meðalhraðinn verið 109,7 km. Á Þýzkalandi búast menn við að geta komið lestahraðanum upp í 120 lcm. á kl.stund, en enn er það ekki nema bollalegging á papp- írnum. Holdskurður. Vér sáum nýlega í einhveiju íslenzku blaði — vér munum ekki hvar — einhvern nafnleysingja halda því fram, að orðið sholdskurðurs væri rangt; það ætti að heita »holskurður«. Oss varði þá sfzt, að nokkur mundi verða til að hlaupa eftir slíkri kenningu, en síðan höf- um vér þó séð annað blað nota einmitt orðið »holskurð«, og virðist þvf ekki vanþörf á, að kveða þetta fleipur niður, áður en fleiri stranda á því í hugsunarleysi. Það mun og standa Eimr. næst, því vér hyggj- um, að hún hafi fyrst (1896) notað orðið »holdskurð« (Eimr. II, 78), — eins og orðið »gagnrýni« og fleiri önnur nýyrði, sem nú eru orðin algeng. Pað, sem um er að ræða, er að fá viðunandi íslenzkt heiti á því, sem á læknamáli kallast ^óperatióni-. Nú er það ekkert einkenni á »óperatión«, að menn séu skornir á hol, en annað getur þó orðið »holskurður« ekki táknað. »Öperatiónin« getur verið þess eðlis, en þarf ekki að vera það, og er það meira að segja sjaldnar en hitt. Aftur hafa allar »óperatiónir« það sameiginlegt, að skorið er í holdið og oft
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.