Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 34

Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 34
34 jafnháu stigi og hjá þeim. Og hvað sjáum við? Einmitt á sama tíma og íþróttalíf þeirra stóð með mestum blóma, þá komst hreysti þeirra, fegurðarsmekkur, listir, speki og skáldskapur á hæst stig — hærra stig en hjá nokkurri annarri þjóð fyr eða síðar. En íþróttalífinu hnignaði — og öllu öðru hnignaði líka og þjóðin varð undirlægja annarra. Að Rómverjar kunnu að meta líkamsmentunina og álitu, að hún yrði að verða samfara mentun andans, sýnir hið alkunna máltæki þeirra: mens sana in corþore sano—\\&\\ sál í hraust- um búk. Peim var ljóst, að skilyrðið fyrir því, að sálin gæti verið alheil, væri það, að hún ætti sér heilsusamlegan bústað, byggi í hraustum líkama. Við sjáum líka, að þegar líkaminn fer mjög að hrörna hjá gamalmennum, þá lætur sálin einnig á sjá. Menn verða aftur eins og börn með óþroskuðum líkama: »ganga í barndómic. Um sögu íslenzka íþróttalífsins á umliðnum öldum og fram undir síðustu aldamót (1900) má lesa í hinu fróðlega riti Ólafs Davíðssonar »íslenzkar skemtanir«, sem Bókmentafélagið hefir út gefið, og um íþróttir fornmanna sérstaklega í hinni íslenzku út- gáfu af doktorsritgerð dr. Bjorns Bjarnasotiar. Er harla sorglegt að sjá, hve afturförin gat orðið mikil hjá því sem áður var, og skal sú raunasaga ekki hér rakin. Tilraunir þær, sem gerðar vóru á 19. öldinni til að blása nýjum lífsanda í íþróttir vorar, reynd- ust allar svo máttlausar og árangurslitlar, að ekki virðist heldur ómaksins vert að rekja hér sögu þeirra. En um aldamótin eða rétt eftir þau rís hér upp ný alda í íþróttalífinu, sem vonandi reynist svo öflug og áhrifamikil, að ekki verði um hana sagt, að »hún verði til og deyi um leið«. Og það er saga þessarar öldu, sem hér skal reynt að rekja. Pví þó húti nái ekki yfir nema hér- umbil 6 ára bil, þar sem telja má að hútt hefjist með árinu 1905, þá hefir hún þó verið svo viöburðarík, að margs er hér að minn- ast, sem bendir á, að verulegur árroði sé nú aftur að færast yfir íþróttahimin vorn eftir svefnmókið mikla og nóttina löngu. GRETTIR OG ÍSLANDSBELTIÐ. Panti 17. febrúar 1906 stofnuðu 10 meðal hinna eldri borgara á Akureyri félag, er nefn- ist ^íþróttafélagið Grettíri.. Var ákveðið, að félagsmenn skyldu ekki fleiri verða ett 15, og það urðu þeir bráðlega og hafa verið síðan, formaður félagsins er Karl Sigurjónsson, söðlasmiður á Akureyri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.