Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1912, Page 54

Eimreiðin - 01.01.1912, Page 54
54 kæmi meö leikfimisflokk sinn að norðan á leikmót Ungmennafé- laga Islands 1911, og hamlaði það eitt, að menn gátu ekki feng- ið sig lausa frá atvinnu sinni. Var það leitt mjög, að Akureyring- arnir skyldu ekki geta komið suður, því sú för hefði sjálfsagt orðið þeim til mikils sóma. Peir af leikfimisnemendum Rists, sem kostur hefir verið að kynnast í Rvík, hafa sýnt, að þeir hafa átt góðan kennara, og má því gera ráð fyrir, að sýning hans hefði orðið framúrskarandi. Pað er annars sárt, hve mörgum húsbændum hættir til að líta hornauga til íþrótta og allra líkamsæfinga. Pað ætti þó að liggja í augum uppi, að talsverðir kostir geta verið því samfara, að hafa íþróttamenn í þjónustu sinni. f*ví íþróttamaðurinn verður sjaldan eða aldrei veikur og er jafnan glaður og ánægður við vinnuna, sem kemur af því, að honum líður vel líkamlega og and- lega. Hann verður því líka miklu færari en aðrir til að taka að að sér hverskonar vinnu og þolbezti þjónninn, sem vinnuveitand- inn getur fengið. fað mun því sannarlega margborga sig, þó hann verði einhverntíma frá að hverfa til líkamsæfinga,— og það hefðu húsbændur leikfimisflokksins norðlenzka átt að athuga. Íþróttalífið norðanlands hefir verið heldur dauft þann tíma ársins, sem engin leikmót hafa verið í undirbúningi. En 17. júní 1910 var haldið leikmót á Húsavík. Veðrið var gott og fagurt, en það þótti helzt á vanta, hve fáir íþróttamenn tóku þátt í mót- inu. Var það illa farið, hve áhuginn reyndist þá lítill, því hann ætti reyndar að fara því meir vaxandi, því oftar sem leikmótin eru haldin. Á leikmóti þessu fóru þó fram kapphlaup, há- stökk, langstökk, glímur og sund. En með því að enginn af sipurvegurunum stóð sig eins vel og á Akureyrarleikmótinu árið á undan (1909), gerist ekki þörf á að telja þá upp hér.— En þó leitt sé að vita til hluttökuleysis manna í slíkum kappleikjum sem þessum, þá eiga þó Ungmennafélögin þökk og heiður skilinn fyrir forgönguna; og haldi þau áfram — sem vonandi er — þá mun sá tími koma, er menn fara að skilja þessa starfsemi og virða — og leggja sjálfa sig í líma til að endurvekja hreystina í landinu. Sú hugsun kom líka fram 17. júní 1911. Eann dag hófust mikil leikmót bæði á Akureyri og í Rvík. Um sigurvegara á Akureyrarleikmótinu er oss ekki kunnugt, en þar fóru fram kapphlaup (100 stikur), stökk (langstökk, hástökk) hjólreið-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.